Fréttir og tilkynningar
Fréttir27.05.2022Birgitta Haukdal bæjarlistamaður Garðabæjar 2022
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2022 er Birgitta Haukdal söngkona og barnabókahöfundur. Tilkynnt var um valið við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 25. maí. Við sama tilefni var Birgittu og félögum hennar í Írafári afhent tvöföld platínuplata fyrir metsöluplötu sína „Allt sem ég sé“ og tóku þau lagið að þessu tilefni.
Fréttir23.05.2022Ný menntastefna Garðabæjar
Menntastefna Garðabæjar 2022-2030 hefur nú litið dagsins ljós. Eldri stefna sveitarfélagsins var endurskoðuð og var það gert í víðtæku samráði við börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, starfsfólk, kjörna fulltrúa, forráðamenn og bæjarbúa.
Fréttir23.05.2022M-listi hefur kært framkvæmd kosninganna
M-listi Miðflokksins hefur kært framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ til úrskurðarnefndar kosningamála. Í kærunni er vísað til þess að kjörseðill hafi verið þannig gerður að ekki hafi gætt jafnræðis með framboðum.
Fréttir20.05.2022Ærslabelgir í Garðabæ
Ærslabelgir eru gríðarlega vinsælir um þessar mundir. Um er að ræða uppblásnar hoppudýnur sem koma í allskyns stærðum og gerðum. Hugmyndin og virknin er einföld; á ærslabelg eiga allir að geta notið sín og leikið sér við að hoppa og skoppa.
Fréttir18.05.2022Ný fræðsluskilti um fuglalíf við Urriðavatn
Við Urriðavatn í Garðabæ er að finna fjölmörg ný fræðsluskilti um fuglalíf við vatnið. Uppsetning fræðsluskiltanna er samstarfsverkefni Toyota á Íslandi og Garðabæjar.
Fréttir18.05.2022Endurtalningu lokið - sama niðurstaða
Miðvikudaginn 18. maí 2022 fór fram endurtalning í Garðabæ á atkvæðum úr sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru sl. laugardag. Farið var yfir flokkun á öllum atkvæðum og hvert einasta atkvæði talið upp á nýtt. Atkvæðafjöldinn skiptist með nákvæmlega sama hætti milli flokka í endurtalningunni og í upphaflegri talningu.
Fréttir18.05.2022Stjörnuhlaupið 2022
Stjörnuhlaupið fer fram síðdegis laugardaginn 21. maí og líkt og í fyrra verður hlaupið ræst kl. 16:00. Boðið verður upp á tvær hlaupaleiðir, annars vegar 10 km hring og hins vegar 4 km hring.
Fréttir17.05.2022Endurtalning atkvæða
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að verða við beiðni um endurtalningu atkvæða vegna sveitarstjórnarkosninga. Endurtalning fer fram miðvikudaginn 18. maí nk.
Fréttir15.05.2022Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ
Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn, D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 7 fulltrúa, G-listi Garðabæjarlistans fékk 2 fulltrúa, C-listi Viðreisnar fékk 1 fulltrúa og B-listi Framsóknarflokks 1 fulltrúa.
Fréttir14.05.2022Kjörsókn í Garðabæ - nýjustu tölur
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar hófst í morgun laugardaginn 14. maí 2022 kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 í kvöld. Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn.
Fréttir13.05.2022Vífilsbúð – ný útilífsmiðstöð skáta vígð
Miðvikudaginn 11. maí sl. var ný útilífsmiðstöð skátafélagsins Vífils er nefnist Vífilsbúð vígð. Útilífsmiðstöðin Vífilsbúð er staðsett við Grunnuvötn í Heiðmörk. Með tilkomu hinnar nýju útilífsmiðstöðvar Vífilsbúðar skapast betri möguleikar á að efla áhuga barna og unglinga á starfsemi skátafélagsins enda verður húsnæðið notað til að starfrækja fjölbreytta uppeldisstarfsemi í anda skátahreyfingarinnar.
Fréttir13.05.2022Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 14. maí
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 14. maí 2022, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Fréttir12.05.2022Ný reiðhöll Sóta á Álftanesi vígð
Þriðjudaginn 10. maí sl. var ný reiðhöll hestamannafélagsins Sóta á Álftanesi vígð. Fulltrúar úr bæjarstjórn Garðabæjar ásamt forsvarsmönnum Sóta klipptu sameiginlega á borða við þetta tækifæri og ungmenni úr hestamannafélaginu sýndu listir sínar á fögrum fákum í reiðhöllinni.
Fréttir10.05.2022Úttekt vegna starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla
Í desember 2021 ákvað Garðabær að gera úttekt á starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla sem hjónin Beverly Sue Gíslason og Einar Gíslason ráku í Garðabæ með hléum á árunum 1996-2014 og verklagi sveitarfélagsins vegna starfseminnar.
Fréttir06.05.2022Nýr leikskóli við Kauptún í Garðabæ
Fimmtudaginn 5. maí tóku bæjarfulltrúar í Garðabæ ásamt formanni leikskólanefndar skóflustungu að nýjum leikskóla við Kauptún í Garðabæ. Hress og kát börn úr kór leikskólans Hæðarbóls í Garðabæ mættu á svæðið og sungu fyrir viðstadda á athöfninni.