Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ

Úrslit í sveitarstjórnarkosningum í Garðabæ 16. maí 2026 liggja fyrir. Kjörsókn í Garðabæ var 73,9% sem er töluvert meiri kosningaþátttaka en árið 2022 (64,1%).
Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn, D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 8 fulltrúa, S-listi Samfylkingar fékk 1 fulltrúa, B-listi Framsóknarflokks fékk 1 fulltrúa og G-listi Garðabæjarlistans fékk 1 fulltrúa.
Lokatölur voru eftirfarandi:
Alls greidd atkvæði voru 11 626, alls voru á kjörskrá 15 724. Sjá einnig frétt um kjörsókn yfir daginn hér.
Atkvæði féllu þannig:
Atkvæði | Fulltrúar í bæjarstjórn | ||
|---|---|---|---|
B LISTI | Framsóknarflokkurinn | 1024 | Hlynur Bæringsson |
C LISTI | Viðreisn | 721 | - |
D LISTI | Sjálfstæðisflokkurinn | 6644 | Almar Guðmundsson, Björg Fenger, Margrét Bjarnadóttir, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Stella Stefánsdóttir, Birkir Guðlaugsson, Jón Þór Eggertsson, Anna R. Möller |
G LISTI | Garðabæjarlistinn | 988 | Þorbjörg Þorvaldsdóttir |
M LISTI | Miðflokkurinn | 762 | - |
S LISTI | Samfylkingin | 1323 | Kjartan Atli Kjartansson |