Beint í efni

Íþrótta­fólk árs­ins

Íþróttamaður Garðabæjar hefur verið tilnefndur frá árinu 1982. Tilkynnt er um valið á íþróttahátíð Garðabæjar sem haldin er í byrjun hvers árs.

Viðurkenningar fyrir afrek í íþróttum

Íþrótta- og tómstundaráð hefur umsjón með vali á íþróttafólki ársins í Garðabæ. Almenningur getur tekið þátt í kjöri íþróttakarls og íþróttakonu ársins með vefkosningu sem er sérstaklega auglýst.

Viðurkenningar eru veittar fyrir:

  • Íþróttakarl Garðabæjar.
  • Íþróttakonu Garðabæjar.
  • Þjálfarar ársins.
  • Heiðursviðurkenning fyrir framlag til íþrótta- og æskulýðsmála.
  • Lið ársins í hópíþróttum.
  • Landsliðsþátttöku í fyrsta skipti með A-landsliði.
  • Landsliðsþátttöku í fyrsta skipti í keppni með U-landsliði.
  • Árangur á erlendum vettvangi.

Íþróttafólk ársins 2025

Ingunn Guðbrandsdóttir, Embla og Edda, sem tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Jóns Þórs, ásamt Lucie Martinsdóttir Stefaniková.
  • Íþróttakarl ársins: Jón Þór Sigurðsson, skotíþróttamaður.
  • Lucie Martinsdóttir Stefaniková, kraftlyftingakona.
  • Lið ársins: Meistaraflokkur karla í körfubolta hjá Stjörnunni.
  • Þjálfarar ársins: Þjálfarateymi meistaraflokka fimleikadeildar Stjörnunnar.
  • Heiðursviðurkenningar: Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz, Agnar Jón Ágústsson, Helgi Hrannarr Jónsson og Sigrún Þorsteinsdóttir.

Kynntu þér íþróttafólk ársins 2025

Íþróttafólk fyrri ára

2024

Ásta Kristinsdóttir, fimleikakona Stjörnunnar og Ægir Þór Steinarsson körfuboltamaður Stjörnunnar.
  • Íþróttakarl ársins: Ægir Þór Steinarsson, körfuboltamaður Stjörnunnar
  • Íþróttakona ársins: Ásta Kristinsdóttir, fimleikakona Stjörnunnar.
  • Þjálfarar ársins: Hinrik Pálsson hjá kraftlyftingadeild Stjörnunnar og Árný Oddbjörg Oddsdóttir hjá hestaíþróttadeild Spretts.
  • Lið ársins: Stjarnan, meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum.
  • Heiðursviðurkenningar: Halldóra Jónsdóttir og Björgvin Júníusson.

2023

Ísold Sævarsdóttir frjálsíþrótta- og körfuboltakona og Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingamaður Stjörnunni.
  • Íþróttakarl ársins: Friðbjörn Bragi Hlynsson, kraftlyftingamaður í Stjörnunni.
  • Íþróttakona ársins: Ísold Sævarsdóttir, frjálsíþrótta- og körfuboltakona í FH og Stjörnunni.
  • Lið ársins: Karlalið Álftaness í körfuknattleik.
  • Þjálfarar ársins: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, knattspyrnuþjálfari fatlaðra hjá Stjörnunni, og Vilhjálmur Halldórsson, handboltaþjálfari í yngri flokkum hjá Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Guðmundur Jónsson í handknattleiksdeild Stjörnunnar og Margrét Tómasdóttir í Skátafélaginu Vífli og Hestamannafélaginu Spretti.

2022

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, Hilmar íþróttakarl ársins, Ásta íþróttakona ársins og Hrannar Bragi Eyjólfsson, formaður íþrótta og tómstundaráðs. Mynd: Garðapósturinn.
  • Íþróttakarl ársins: Hilmar Snær Örvarsson, skíðamaður.
  • Íþróttakona ársins: Ásta Kristinsdóttir, hópfimleikakona í Stjörnunni.
  • Lið ársins: Karlasveit meistaraflokks GKG.
  • Þjálfarar ársins: Siggeir Magnússon handboltaþjálfari í Stjörnunni og Auður Íris Ólafsdóttir körfuboltaþjálfari í Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Steinar J. Lúðvíksson í Stjörnunni og Ragnheiður Stephensen í Stjörnunni og GKG.

2021

Kolbrún Þöll Þorradóttir hópfimleikakona í Stjörnunni og Helgi Laxdal Aðalgeirsson hópfimleikamaður í Stjörnunni.
  • Íþróttakarl ársins: Helgi Laxdal Aðalgeirsson, hópfimleikamaður í Stjörnunni.
  • Íþróttakona ársins: Kolbrún Þöll Þorradóttir, hópfimleikakona í Stjörnunni.
  • Lið ársins: Kvennalið meistaraflokks Stjörnunnar í hópfimleikum.
  • Þjálfarar ársins: Óskar Þorsteinsson körfuboltaþjálfari hjá Stjörnunni og Una Brá Jónsdóttir fimleikaþjálfari hjá Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Elín Jóhannsdóttir í Bessastaðasókn, Stefanía Magnúsdóttir í Félagi eldri borgara í Garðabæ (FEBG), Jónatan Smári Svavarsson í Skátafélaginu Vífli og Guðmundur Oddsson í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG).