Beint í efni

Tóm­stunda­starf barna

Í Garðabæ er boðið upp á fjölbreytt æskulýðs- og íþróttastarf fyrir börn og unglinga. Öll börn á aldrinum 5 til 18 ára fá árlega hvatapeninga til að greiða niður reglulegt æskulýðs- og íþróttastarf.

Æskulýðs- og íþróttastarf í Garðabæ

Á vefnum fristund.is eru upplýsingar um fjölbreytt frístundastarf í boði hjá félögum í Reykjavík og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) 

  • Íþróttahúsið Strandgötu, 220 Hafnarfjörður
  • Sími: 555 1711
  • Netfang: bh@bhbadminton.is

Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á æfingar í badminton fyrir alla aldurshópa í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Yngstu iðkendurnir eru 5 ára og þeir elstu komnir yfir sextugt. Iðkendum er skipt í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Barna- og æskulýðsstarf Bessastaðasóknar

  • Brekkuskógar 1, 225 Álftanes
  • Sími: 577 1205

Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimilinu kl. 11 alla sunnudaga nema 1. sunnudag í mánuði en þá er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í Bessastaðakirkju með þátttöku sunnudagaskólans. Einnig er boðið upp á foreldramorgna.

Barnastarf Garðasóknar

Garðasókn er með fjölbreytt barnastarf í Vídalínskirkju og í Urriðaholtsskóla. Þar má nefna sunnudagaskóla, vinadeild fyrir 6–9 ára börn og TTT-starf fyrir 10–12 ára í samstarfi við KFUM og KFUK.

Barna- og unglingakórar Vídalínskirkju

Vídalínskirkja stendur fyrir metnaðarfullu tónlistarstarfi í barnakórum fyrir bæði 6–9 ára og 10–12 ára börn. Einnig er unglingakór fyrir 13–16 ára. Æfingar eru í safnaðarheimili Vídalínskirkju og þátttaka er ókeypis.

Dansskóli Birnu Björns

Dansskóli Birnu Björnsdóttur býður upp á fjölbreytta danskennslu í Ásgarði. Skólinn er einnig starfræktur í Héðinshúsinu, Egilshöll og Sporthúsinu. Kennt er frá 6 ára aldri og er skipt í byrjenda- og framhaldshópa.

Dansskóli Brynju Péturs

Dansskóli Brynju Péturs býður upp á metnaðarfullt dansnám og fjölbreytta dansstíla. 

Golfklúbbur Álftaness

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

GKG heldur uppi æfingum fyrir félagsmenn 8–21 árs rúmlega 10 mánuði á ári. Vetraræfingar hefjast hvert ár í byrjun nóvember og sumaræfingum lýkur um miðjan september.

Golfklúbburinn Oddur

Barna- og unglingaæfingar GO eru ætlaðar félagsmönnum á aldrinum 10 til 18 ára. Yngri iðkendur eru þó velkomnir í samráði við þjálfara.

Hestamannafélagið Sóti

Hestamannafélagið Sóti er með fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni á sviði hestaíþrótta. Starfsemin fer að mestu leyti fram frá janúar–júní og er fyrir börn sem hafa aðgang að hestum.

Hestamannafélagið Sprettur

Hestamannafélagið Sprettur er með fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni á sviði hestaíþrótta.

Klifið, skapandi fræðslusetur

Klifið býður upp á fjölbreytt og skapandi námskeið fyrir börn og unglinga. Námskeiðin snúa að tækni og vísindum, myndlist, tónlist, listdansi, leiklist, sjálfsrækt og allir eru velkomnir. Hugmyndafræði Klifsins byggir á eflandi kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar og kenningum um hæfniþróun.

Leikfélagið Draumar

Leikfélagið Draumar heldur söngleikjanámskeið á sumrin fyrir börn á aldrinum 5 til 13 ára. Á námskeiðunum er kennd leiklist, spuni, framkoma, söngtækni og grunnatriði í dansi. Eitt meginmarkmið námskeiðanna er að börn styrki sjálfsmynd sína, læri að koma fram og hafi gaman af.

Skátafélagið Svanir

Hjá Skátafélaginu Svönum er skátastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 8–18 ára. Allir eru velkomnir til að upplifa ævintýrið, vináttuna og gleðina sem er að finna í skátunum.

Facebook

Skátafélagið Vífill

  • Jötunheimar, Bæjarbraut 7, 210 Garðabær
  • Sími: 899 0089
  • Netfang: vifill@vifill.is

Skátafélagið Vífill býður upp á öflugt skátastarf fyrir börn og ungmenni frá 7 ára aldri. Vífill var fyrst skátafélaga til að fá viðurkenninguna ,,Fyrirmyndarfélag Bandalags íslenskra skáta”.

Stjarnan

Stjarnan býður upp á fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni, meðal annars knattspyrnu, körfubolta, handbolta, fimleika, sund og lyftingar.

Taflfélag Garðabæjar

Taflfélag Garðabæjar heldur uppi skákæfingum fyrir börn og unglinga frá 4 ára aldri. Æfingarnar fara fram á 3. hæð í Miðgarði í Vetrarmýri.

Tennisfélag Garðabæjar

Tennisfélag Garðabæjar heldur sameiginlegar æfingar barna og unglinga með Tennisfélagi Kópavogs og Tennisfélagi Hafnafjarðar í Tennishöllinni í Kópavogi. Öll börn og unglingar eru velkomin.

UMFÁ (Ungmennafélag Álftaness)

Ungmennafélag Álftaness hefur að markmiði að efla útivist, líkamsrækt og hreyfingu hjá félögum sínum. Meðal annars er æft fótbolti, körfubolti, blak, Soo Bahk Do og frjálsar íþróttir. Íþróttaskóli barnanna starfar á veturna fyrir öll börn á Álftanesi á aldrinum 2–5 ára.

Æskulýðsfélag Garðasóknar

  • Vídalínskirkju, v/Kirkjulund, 210 Garðabær
  • Sími: 565 6380
  • Netfang: gardasokn@gardasokn.is
  • Vefsíða: gardasokn.is

Æskulýðsfélagið er fyrir unglinga í 8.–10. bekk. Starfið miðar að því að eiga góðar og uppbyggjandi samverustundir. Dagskráin er fjölbreytt og miðuð að áhuga þátttakenda. Við leggjum áherslu á að efla sjálfstraust, virðingu og víðsýni. Í starfinu ræðum við málefni sem skipta ungt fólk máli í samhengi við kristna trú og gildi.

Frístundabíllinn

Frístundabíllinn í Garðabæ keyrir börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf. Barnið þarf ekki að vera í frístundaheimili en nauðsynlegt er að skrá það í bílinn.