Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:
Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Lifandi Bókasafn






Álftanessafn
Álftanessafn er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.
Viðburðadagatal
Foreldramorgunn - krílasögur og söngur
Þóranna Gunný, söngkona og deildarstjóri á leikskóla leiðir foreldra og krílin þeirra í skemmtilegri söng og sögustund.
Viðburðir30.04.2026Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 30. apríl 2026 kl. 10:30 - 11:00
Sögur og söngur með Þórönnu Gunný
Þóranna syngur með börnunum helstu leikskólalögin og fær hópinn til að dansa með.
Viðburðir02.05.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 2. maí 2026 kl. 11:15 - 12:00
Ljósaborð og segulkubbar
Við dimmum ljósin þannig að hægt er að leika sér með form og liti kubbanna og sjá hvernig ljósið varpast í gegnum þá.
Viðburðir08.05.2026Bókasafn Garðabæjar
föstudagur, 8. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.