25. sep. 2023

Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, skólar og sveitarfélög um allan heim, sýni skuldbindingu sína við heimsmarkmiðin og aðgerðirnar sem þau krefjast.

UN Global Compact á Íslandi, í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi með stuðningi forsætisráðuneytins og utanríkisráðuneytisins, stendur fyrir fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn á Íslandi. 

Garðabær tekur þátt í fánadeginum og minnir á heimasíðu bæjarins um heimsmarkmiðin. 

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í innleiðingu heimsmarkmiðanna og hefur Garðabær valið 38 undirmarkmið til að innleiða í starfi, stefnum og framtíðarsýn.

Markmiðin 38 og ferlið við val þeirra var staðfest í bæjarráði Garðabæjar þann 3. mars 2020. Markmiðin tengjast vel inn meginstoðir sjálfbærrar þróunar; efnahagslegar, félagslegar og umhverfislegar. Stoðirnar eru grunnur að því að tryggja velferð einstaklinga og samfélaga með sjálfbærni til framtíðar í huga.

 

Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, skólar og sveitarfélög um allan heim, sýni skuldbindingu sína við heimsmarkmiðin og aðgerðirnar sem þau krefjast. 

 

Þann 25. september 2023 eru átta ár liðin frá því að heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun voru samþykkt. Heimsmarkmiðin fela í sér ákall eftir alþjóðlegu samstarfi um að efla velferð og gera heiminn að betri stað fyrir árið 2030. Þótt athyglisverður árangur hafi náðst á ýmsum sviðum þá er vegferðin til 2030 hálfnuð og ljóst að aukinn slagkraft þarf í aðgerðir til að ná þeim árangri sem að var stefnt. 

Fánaherferð UN Global Compact hófst í Hollandi árið 2019 og hafa vinsældir framtaksins farið ört vaxandi. Í ár taka hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga þátt í fánadeginum um allan heim undir heitinu Saman fyrir heimsmarkmiðin #TogetherForTheSDGs

Frekari upplýsingar um heimsmarkmiðin er að finna á vef Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.