Hinsegin viðburðir í Garðabæ
Í tilefni hinsegin daga í byrjun ágúst verður boðið upp á viðburði á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands. Söfnin verða skreytt regnbogafánum og hinsegin bókmenntir verða áberandi á bókasafninu.
Í tilefni hinsegin daga í byrjun ágúst verður boðið upp á viðburði á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands. Söfnin verða skreytt regnbogafánum og hinsegin bókmenntir verða áberandi á bókasafninu.
- Þriðjudaginn 2. ágúst frá kl. 13-15 fer fram fánasmiðja á Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7 þar sem fjölbreytileikanum verður fagnað með gerð hinsegin fána.
- Fimmtudaginn 4. ágúst frá kl. 13-15 fer fram regnbogasmiðja í Hönnunarsafni Íslands þar sem ýmiskonar marglitur efniviður verður innblástur sköpunar. Það er Una María Magnúsdóttir, nemi í grafískri hönnun við Rietveld-akademíuna í Amsterdam sem leiðir smiðjuna sem ætlaður er öllum aldurshópum.
- Þann sama dag, 4. ágúst frá kl. 17 verður svo söngleikurinn Rocky Horror Picture Show sýndur á skjá á bókasafninu .
Viðburður á facebook-síðu Bókasafns Garðabæjar.
Þátttaka er ókeypis og öll hjartanlega velkomin að fagna fjölbreytileikanum í tilefni hinsegin daga
Samstarf við Samtökin ´78
Fyrr í sumar samþykkti bæjarráð Garðabæjar að ganga til viðræðna við Samtökin ‘78 um samstarfssamning. Markmiðið með slíkum samning er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. Jafnframt verði horft til gildandi jafnréttisstefnu bæjarins og metið hvort og þá að hvaða leyti hún geti ýtt betur undir fjölbreytileika og styrkt stöðu hinsegin fólks og annarra hópa sem geta átt undir högg að sækja stöðu sinnar vegna.