21. maí 2024

Niðurstöður úr kosningum Betri Garðabæjar

Niðurstöður úr rafrænum kosningum Betri Garðabæjar liggja nú fyrir. Kosningar stóðu yfir frá 8. maí til og með 20. maí 2024.

Niðurstöður úr rafrænum kosningum Betri Garðabæjar liggja nú fyrir. Kosningar stóðu yfir frá 8. maí til og með 20. maí 2024. Betri Garðabær er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu Garðabæjar um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ.

15 verkefni hlutu brautargengi í kosningunum. Alls voru 20 verkefni á rafræna kjörseðlinum. Heildarfjármagn til framkvæmdar verkefnanna er 100 milljónir og verkefnin verða framkvæmd á næstu tveimur árum. Alls kusu 2078 eða um 13 % íbúa Garðabæjar sem voru á kjörskrá, þ.e. íbúar sem verða 15 ára á árinu (fæddir 2009) og eldri. Á kjörskrá voru 16045.

Öllum íbúum sem sendu inn hugmyndir, tóku þátt í umfjöllun um þær á hugmyndasöfnunarvefnum og kusu í rafrænu kosningunum er þakkað þátttökuna.

Verkefni sem fengið hafa kosningu eru:

 Verkefni  Fjöldi atkvæða  Kostnaður
Fjölskylduútisvæði miðsvæðis í Garðabæ 1474 20 m.
Innileikvöllur á Garðatorgi 1208 5 m.
Lagfæra stíga í Vífilsstaðahrauni 1201 12 m.
Bættur göngustígur frá Vífilsstaðavatni upp að vörðunni Gunnhildi 1174 15 m.
Afgirt hundasvæði 985 5 m.
Slökunarrými fyrir börn með greiningar og erfiðleika 921 8 m.
Endurnýja og breikka trébrýr yfir læki í Garðabæ 905 5 m.
Innileiksvæði í Ásgarði 887 2 m.
Púttvöllur í Sjálandi 886 8 m.
Lengsta rennibraut í Garðabæ í Urriðaholti 769 6 m.
Mínútu- og tempóklukkur fyrir sundlaugar í Garðabæ 738 0,5 m.
Sturtur við útiklefann í Álftaneslaug 634 4 m.
Körfuboltaspjöld við öldulaug í Álftaneslaug 589 0.5 m.
Skolaðstaða fyrir siglingaklúbbinn 508 5 m.
Stytta af kettinum Sushi 334 1 m.
 Samtals  13213  97 m.


Heildaratkvæði allra verkefna sem voru á kjörseðli:

Verkefni Fjöldi atkvæða Kostnaður
Fjölskylduútisvæði miðsvæðis í Garðabæ 1474 20 m.
Innileikvöllur á Garðatorgi 1208 5 m.
Lagfæra stíga í Vífilsstaðahrauni 1201 12 m.
Bættur göngustígur frá Vífilsstaðavatni upp að vörðunni Gunnhildi 1174 15 m.
Afgirt hundasvæði 985 5 m.
Slökunarrými fyrir börn með greiningar og erfiðleika 921 8 m.
Endurnýja og breikka trébrýr yfir læki í Garðabæ 905 5 m.
Innileiksvæði í Ásgarði 887 2 m.
Púttvöllur í Sjálandi 886 8 m.
Lengsta rennibraut í Garðabæ í Urriðaholti 769 6 m.
Mínútu- og tempóklukkur fyrir sundlaugar í Garðabæ 738 0.5 m.
Bætt aðstaða fyrir sjósundsiðkun í Helguvík 681 20 m.
Sturtur við útiklefann í Álftaneslaug 634 4 m.
Körfuboltaspjöld við öldulaug í Álftaneslaug 589 0,5 m.
Skolaðstaða fyrir siglingaklúbbinn 508 5 m.
Betri leikvöllur við Lambhaga á Álftanesi 498 10 m.
Gervigras á fótboltavöllinn milli Hæðahverfis og Bæjargils 440 12 m.
Gervigras á fótboltavöllinn við Haustakur 429 12 m.
Útsýnispallur fyrir fuglaskoðun í fjörunni við Kasthúsatjörn 425 10 m.
Stytta af kettinum Sushi 334 1 m.
Samtals 15686 161 m.

Betri Garðabær er þróunarverkefni sem verður þróað áfram með íbúum út frá reynslu, ábendingum og þátttöku.

Sá sem vill gera athugasemd við framkvæmd kosninganna skal koma athugasemd á framfæri við Garðabæ á netfangið gardabaer@gardabaer.is innan sjö daga frá því að niðurstöður kosninganna voru birtar.

Upplýsingar um Betri Garðabæ má finna hér á vefnum.

Myndir af verkefnum (á kjörseðli) sem hlutu kosningu:

Fjölskylduútisvæði miðsvæðis í Garðabæ
Fjolskylduutisvaedi

Innileikvöllur á Garðatorgi

Innileikvollur_Gardatorg

Lagfæra stíga í Vífilsstaðahrauni
02

Bættur göngustígur frá Vífilsstaðavatni upp að vörðunni Gunnhildi

03

Afgirt hundasvæði

15

Slökunarrými fyrir börn með greiningar og erfiðleika

16

Endurnýja og breikka trébrýr yfir læki í Garðabæ

18

Innileiksvæði í Ásgarði

Asgardur_1716301128150

Púttvöllur í Sjálandi

12

Lengsta rennibraut í Garðabæ í Urriðaholti

01

Mínútu- og tempóklukkur fyrir sundlaugar í Garðabæ

17

Sturtur við útiklefann í Álftaneslaug

19

Körfuboltaspjöld við öldulaug í Álftaneslaug

20

Skolaðstaða fyrir siglingaklúbbinn

14

Stytta af kettinum Sushi

11