Útboð: Byggingarréttur í Vetrarmýri
Íslandsbanki, fyrir hönd Garðabæjar, auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á tveimur aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í Garðabæ.
Um er að ræða annan áfanga í sölu byggingarrétta á svæðinu en sala í fyrsta áfanga kláraðist í maí 2022. Í þessum áfanga eru boðnir út u.þ.b. 17.600 fermetrar af fjölbýli og 2.800 fermetrar af atvinnuhúsnæði á tveimur aðskildum reitum.
Vetrarmýri er samtals 20 hektara byggingarland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaðavegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs.
Áætluð heildarstærð byggðar í Vetrarmýri er um 78.000 fermetrar af fjölbýli og 45.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði með 785 íbúðum að hámarki.
Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan 13:00 miðvikudaginn 24. september 2025.
Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn á útboðsvef Garðabæjar.
Öllum fyrirspurnum skal beint í gegnum netfangið vetrarmyri@islandsbanki.is og kauptilboðum skal skila í lokuðu umslagi til móttöku Íslandsbanka, 9. hæð, Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan ofangreinds tilboðsfrests.
Tilboð verða opnuð kl. 13:30 sama dag á skrifstofu Íslandsbanka, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.