Vetrarmýri- annar áfangi

27. ágú. 2025

Íslandsbanki, fyrir hönd Garðabæjar, auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á tveimur aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í Garðabæ.

Um er að ræða annan áfanga í sölu byggingarrétta á svæðinu en sala í fyrsta áfanga kláraðist í maí 2022. Í þessum áfanga eru boðnir út u.þ.b. 17.600 fermetrar af fjölbýli og 2.800 fermetrar af atvinnuhúsnæði á tveimur aðskildum reitum.

Vetrarmýri er samtals 20 hektara byggingaland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaðavegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs.
Áætluð heildarstærð byggðar í Vetrarmýri er um 78.000 fermetrar af fjölbýli og 45.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði með 785 íbúðum að hámarki.

Gardabaer2

 

 

Samgöngumiðað svæði í nálægð við náttúruperlur

Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á Vífilstaðalandi. Við gerð deiliskipulagsins var horft til góðra tenginga við stofnbrautina Reykjanesbraut, almenningssamgöngur og göngu- og hjólastíga og nálægar við útivistarperlur. Auk þess er aðgengi að nálægri samfélagsþjónustu eins og skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum o.fl. mjög gott. Frekari upplýsingar um deiliskipulag og uppbyggingu svæðisins má nálgast hér fyrir neðan á vef Garðabæjar.

Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan 13:00 miðvikudaginn 24. september 2025.
Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn hér fyrir neðan.
Öllum fyrirspurnum skal beint í gegnum netfangið vetrarmyri@islandsbanki.is og kauptilboðum skal skila í lokuðu umslagi til móttöku Íslandsbanka, 9. hæð, Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan ofangreinds tilboðsfrests.
Tilboð verða opnuð kl. 13:30 sama dag á skrifstofu Íslandsbanka, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

*Viðkomandi útboðsgögn bíða samþykkis í B-deild Stjórnartíðinda.

Til að sækja skjölin þarf að skrá nafn og netfang. Þegar það hefur verið gert þá er hægt að ýta á skjölin og hala þeim niður.

Útboðsgögn