2. jún. 2023

Varptími máva hafinn: Leiðir til að verjast ágangi

Íbúar eru hvattir til þess að fylgjast með þökum sínum og öðrum stöðum sem mávar gætu nýtt sem varpstaði eða set staði.
Afar mikilvægt er að loka fyrir fæðuuppsprettur af mannavöldum – svo sem rusl, brauðgjafir o.fl.

Garðabær stóð fyrir fræðslu- og upplýsingafundi fyrir íbúa bæjarins í Sjálandsskóla í aprílmánuði. Með því að byggð færist að hefðbundnum varplöndum þá verður nábýli máva og íbúa umtalsvert. Markmið fundarins var í samræmi við ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar um upplýsingagjöf og fræðslu til íbúa í þeirri von að þeir geti búið í námunda við Gálgahraun og Arnarnesvog í sátt og samlyndi við náttúruna sem þar er.

Arnór Þ. Sigfússon, dýravistfræðingur hjá Verkís hélt fræðsluerindi og sat svo fyrir svörum ásamt Magna Konráðssyni, meindýraeyði og Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra. Fundurinn var vel sóttur og góðar umræður sköpuðust um málefnið.

Meindýraeyðir á vegum Garðabæjar hefur límt fuglagadda á alla ljósastaura í Sjálandi og víðar í bæjarfélaginu til að mávar geti ekki hafst við á staurunum auk þess verður stungið á egg mávanna (þ.e.a.s. sem ekki eru í friðlandi bæjarins).

Varptími Máva er að hefjast og í sumum tilfellum hafinn og geta íbúar gripið til ýmissa aðgerða.

Íbúar eru hvattir til þess að fylgjast með þökum sínum og öðrum stöðum sem mávar gætu nýtt sem varpstaði eða set staði.


Arnór benti á að þrjár aðferðir hefðu reynst bestar við að stemma stigu við áganginum, en þær væru: 

  •  truflun, 
  • eggjaeyðing og/eða 
  • eggjatínsla ((þ.e.a.s. sem ekki eru í friðlandi bæjarins).
  • Meindýraeyðar geta aðstoðað við að fjarlægja hreiður mávanna eða unga.

 

Fuglafræðingar telja fjölda máva ekki óeðlilega mikinn í Garðabæ en stofninn sveiflast með fjölda síla í sjónum. Þegar þau minnka sækir mávurinn meira upp á land í leit að æti. Meindýraeyðar hafa bent á að eigendur húsnæðis eða húsfélög geti t.d. sett upp fælur á þök, eins konar veifur. 

Mikilvægt er að fylgjast með þökum og öðrum setstöðum reglulega til að koma í veg fyrir að önnur hreiður verði gerð á sama stað. 

Þá er afar mikilvægt að loka fyrir fæðuuppsprettur af mannavöldum – svo sem rusl, brauðgjafir o.fl.

Hér má sjá glærur Arnórs frá fyrirlestrinum.