Beint í efni

Bæj­ar­stjórn Garða­bæj­ar

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Hún hefur yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, nema hún feli hana öðrum. Meðal annarra verkefna er kosning í ráð og nefndir, yfirstjórn fjármála, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda samkvæmt lögum og eftir þörfum.

Fulltrúar í bæjarstjórn Garðabæjar

Bæjarstjórn Garðabæjar 2022-2026 er skipuð 11 fulltrúum.

Forseti bæjarstjórnar er Margrét Bjarnadóttir. Varaforsetar eru Gunnar Valur Gíslason (1. varaforseti) og Ingvar Arnarson (2. varaforseti).

Í bæjarstjórn Garðabæjar sitja:

Fundir bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Garðabæjar fundar fyrsta og þriðja fimmtudag í hverjum mánuði og hefjast fundirnir klukkan 17:00.

Fundirnir eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7, og eru öllum opnir. Hægt er að fylgjast með fundunum í beinu streymi.

Næsti fundur bæjarstjórnar verður fimmtudaginn 19. mars  kl. 17:00 í Sveinatungu.

Fundarboð bæjarstjórnar 19. mars 2026.