15. fundur
15. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.11.2025
Kl. 10:00 - 11:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2510026
01
Kauptún 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóðinni Kauptún 6.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt sem er í samræmi við framlagða aðaluppdrætti enda eru þeir í samræmi við deiliskipulag Kauptúns með síðari breytingum.
Málsnúmer 2511177
02
Sunnuflöt 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin felur í sér viðbyggingar á suðurhlið húss og viðbótar kjallara. Fyrirhugaðar viðbyggingar fara ekki upp fyrir hámarks nýtingarhlutfall og eru innan byggingarreits.
Fyrirhuguð klæðning mun aftur á móti fara lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Málsnúmer 2301595
03
Lindarflöt 44 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt samþykki lóðarhafa Lindarflatar 42 og Hagaflatar 10 vegna nálægðar smáhýsis að lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2511026
04
Urriðaholtsstræti 3 - Bílastæði í kjallara
Lögð fram fyrirspurn sem snýr að fjölda bílastæði í kjallara við Urriðaholtsstræti 3, enn fremur er óskað eftir auknum fermetrafjölda neðanjarðar.
Skipulagsstjóri telur að ákvæði deiliskipulags um fjölda bílastæða á umræddri lóð sé lágmarkskrafa. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað það neðanjarðarbyggingarmagn sem kemur fram í fyrirspurn varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.