Urriðaholtsstræti 3 - Bílastæði í kjallara
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
15. fundur
Lögð fram fyrirspurn sem snýr að fjölda bílastæði í kjallara við Urriðaholtsstræti 3, enn fremur er óskað eftir auknum fermetrafjölda neðanjarðar.
Skipulagsstjóri telur að ákvæði deiliskipulags um fjölda bílastæða á umræddri lóð sé lágmarkskrafa. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað það neðanjarðarbyggingarmagn sem kemur fram í fyrirspurn varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
17. fundur
Lögð fram fyrirspurn hönnuðar fyrir hönd lóðarhafa um útfærslu bílastæða á lóð. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurn en þar segir: Ekki er lagst gegn því að bílastæðum neðanjarðar sé fjölgað né því að byggingarheimildir neðanjarðar séu auknar að því gefnu að bílakjallari sé innan byggingarreits.
Skipulagsnefnd tekur undir umsögn deiliskipulagshöfundar.