3. fundur
3. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.03.2025
Kl. 10:15 - 10:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2412384
01
Grásteinsmýri 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að Grásteinsmýri 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina hvað skipulagsákvæði varðar.
Málsnúmer 2501038
02
Hestamýri 3 - Umsókn um byggingaleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að Hestamýri 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina hvað skipulagsákvæði varðar.
Málsnúmer 2501269
03
Lyngás 10a - Leyfi fyrir gám
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um staðsetningu gáms á lóðinni Lyngás 10a við lóðarmörk að Skeiðarási 3.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis enda hafa lóðarhafar aðliggjandi lóðar lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemdir við staðsetninguna.
Málsnúmer 2408131
04
Hlíðarbyggð 15 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðingar á lóðarmörkum raðhúsalóðarinnar Hlíðarbyggð 15. Samkvæmt meðfylgjandi hugmynd er hæð skjólveggjar 1,8 m yfir palli á lóð en 2,1-2,6 m yfir landi.
Í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar segir: "Sækja skal um byggingarleyfi fyrir gerð og frágangi veggja eða girðinga sem eru hærri en 1,80 m yfir landi. Kveði deiliskipulag á um annað gilda ákvæði þess. Eftir aðstæðum getur umsókn um byggingarleyfi kallað á skipulagsferli."
Deiliskipulag Hlíðabyggðar kveður ekki á um gerð veggja og girðinga en vinna við endurskoðun deiliskipulags svæðisins er hafin. Í sambærilegum hverfum, t.d. í Hæðum kveður nýlega endurskoðað deiliskipulag á um það að samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gildi. Því er sennilegt að eins verði það niðurstaðan í þessu tilfelli. Veggur sem er 2,6 m að hæð inni í húsagarði er óneitanlega hár að mati skipulagsstjóra og fordæmisgildi samþykktar yrði talsvert.
Því skal sækja um byggingarleyfi fyrir útfærslu eins hún er sett fram í fyrirspurn.
Málsnúmer 2502148
05
Vorbraut 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að Vorbraut 7 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við uppdrættina hvað skipulagsákvæði varðar.
Málsnúmer 2501238
06
Vorbraut 53 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir raðhúslengjunnar Vorbraut 53-61 (5 íbúðareiningar) sem fylgja umsögn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deilsikipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagaða uppdrætti.
Málsnúmer 2501234
07
Vorbraut 61 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir raðhúslengjunnar Vorbraut 53-61 (5 íbúðareiningar) sem fylgja umsögn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deilsikipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagaða uppdrætti.
Málsnúmer 2407365
08
Kinnargata 41 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að hæðarkótum á lóðarmörkum (L) sé breytt.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til umsagnar höfunda deiliskipulags og lóðablaða.
Málsnúmer 2501239
09
Kauptún 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Kauptún 1. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti á grundvelli skipulagsskilmála.