Hlíðarbyggð 15 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
3. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðingar á lóðarmörkum raðhúsalóðarinnar Hlíðarbyggð 15. Samkvæmt meðfylgjandi hugmynd er hæð skjólveggjar 1,8 m yfir palli á lóð en 2,1-2,6 m yfir landi.
Í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar segir: "Sækja skal um byggingarleyfi fyrir gerð og frágangi veggja eða girðinga sem eru hærri en 1,80 m yfir landi. Kveði deiliskipulag á um annað gilda ákvæði þess. Eftir aðstæðum getur umsókn um byggingarleyfi kallað á skipulagsferli."
Deiliskipulag Hlíðabyggðar kveður ekki á um gerð veggja og girðinga en vinna við endurskoðun deiliskipulags svæðisins er hafin. Í sambærilegum hverfum, t.d. í Hæðum kveður nýlega endurskoðað deiliskipulag á um það að samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gildi. Því er sennilegt að eins verði það niðurstaðan í þessu tilfelli. Veggur sem er 2,6 m að hæð inni í húsagarði er óneitanlega hár að mati skipulagsstjóra og fordæmisgildi samþykktar yrði talsvert.
Því skal sækja um byggingarleyfi fyrir útfærslu eins hún er sett fram í fyrirspurn.