Beint í efni

3. fundur

21.02.2023
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

3. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

21.02.2023

Kl. 15:00 - 15:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Hrönn Hafliðadóttir

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2212321

01

Langamýri 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um það hvort heimilað verði að reisa sólskýli við suðurhlið íbúðarhússins. Þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi í Löngumýri er umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Löngumýrar nr. 7, 9,1 7, 21, 27 og 29.

Málsnúmer 2212314

02

Markarflöt 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur neðri hæðar nái lítillega út fyrir byggingarreit.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Markarflatar nr. 16, 20, 13 og 29 sem og Sunnuflatar 17 og 19.

Málsnúmer 2302188

03

Kauptún 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Byggingarleyfisumsókn vísað til umsagnar Urriðaholts ehf og rekstrarfélags Kauptúns.

Málsnúmer 2301512

04

Skjólveggur fyrir Maríugötu 2,4,6 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu skjólveggja á milli lóða raðhússins sem eru 1,5 m yfir því svæði sem þeim er ætlað að skýla en eru 2,1 metrar yfir yfirborði raðhúslóðar fyrir neðan. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað þetta atriði varðar vegna hæðarmunar á milli lóða. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2302009

05

Dýjagata 7 - stoðveggur - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa með nýrri útfærslu. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2212444

06

Hraungata 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að hús verði klætt að utan og fer húsið því lítillega út fyrir byggingarreit. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað utanhúsklæðningu varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 1902370

07

Setbergshamarsgöng

Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborunum austan við Setbergshamar í tengslum við mótun tillagna að umferðarlausnum stofnbrautakerfis í kringum Kaplakrika.

Rannsóknarboranirnar miða að því að kanna aðstæður til jarðgangagerðar undir Setbergshamarinn og eru liður í valkostagreiningu vegna framkvæmdanna.

Að óbreyttu verða boraðar 2 kjarnaholur og 12 holur með loftbor.

Lögð fram teikning sem sýnir staðsetningar borhola.

Leyfi landeiganda liggur fyrir.

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn sbr. 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.