Setbergshamarsgöng
Málsnúmer 1902370
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
3. fundur
Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborunum austan við Setbergshamar í tengslum við mótun tillagna að umferðarlausnum stofnbrautakerfis í kringum Kaplakrika.
Rannsóknarboranirnar miða að því að kanna aðstæður til jarðgangagerðar undir Setbergshamarinn og eru liður í valkostagreiningu vegna framkvæmdanna.
Að óbreyttu verða boraðar 2 kjarnaholur og 12 holur með loftbor.
Lögð fram teikning sem sýnir staðsetningar borhola.
Leyfi landeiganda liggur fyrir.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn sbr. 13.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.