Beint í efni

10. fundur

07.07.2026
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

10. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

07.07.2026

Kl. 11:30 - 11:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2510434

01

Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040, nr. 1446/2025 -Lýsing

Lögð fram tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar sem mun gilda fyrir tímabilið 2025-2040.

Gerð er athugasemd við að brautin sem tengir saman mislæg gatnamót Kaldársselsvegar við "Ofanbyggðaveg" og mislæg gatnamót við Reykjanesbraut sé ekki skilgreind sem stofnbraut eins og aðalskipulag Hafnarfjarðar sem gilti fyrir tímabilið 2005-2025 gerði ráð fyrir við samþykkt þess.

Einnig er gerð athugasemd við að aðalskipulagstillagan geri ráð fyrir jarðgöngum Reykjanesbrautar um Setbergshamar sem gildandi Aðalskipulag Garðarbæjar 2016-2030 gerir ekki ráð fyrir. Þegar tillögur um útfærslu endurbóta á stofnbrautakerfi á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar liggja fyrir verður hægt að vinna að tillögum að breytingum á aðalskipulagsáætlunum beggja sveitarfélaga.

Garðabær leggur áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu og samráðs sveitarfélaganna og að í aðalskipulaginu verði skýrt kveðið á um að virkt og tímanlegt samráð milli nágrannasveitarfélaga verði í fyrirrúmi vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu eða framkvæmda sem gæta áhrifa á sveitarfélagamörkum. Mikilvægt er að samræma lausnir og tryggja að ákvarðanir stuðli að skilvirkni, góðri nýtingu lands og innviða og þjónustustigi íbúa beggja sveitarfélaga.

Málsnúmer 2606363

02

Garðprýði 6 - Umsókn um byggingar-leyfi - Fl. 2



Lögð fram tillaga að einbýlishúsi á lóðinni Garðprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Bygging fer lítilega út fyrir byggingarreit á 4 stöðum og ekki er að öllu leyti tekið tillit til hraunmyndanar sem skilgreind er á deiliskipulagsuppdrætti hvað staðsetningu bílastæða varðar. Um er að ræða lága laut í hrauni.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Garðprýði1, 3, 4 og 8. Ef þeir sem grenndarkynning nær til staðfesta með undirritun sinni á uppdrætti að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna er unnt að stytta frest til að skila inn athugasemdum.