Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040, nr. 1446/2025 -Lýsing
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
10. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar sem mun gilda fyrir tímabilið 2025-2040.
Gerð er athugasemd við að brautin sem tengir saman mislæg gatnamót Kaldársselsvegar við "Ofanbyggðaveg" og mislæg gatnamót við Reykjanesbraut sé ekki skilgreind sem stofnbraut eins og aðalskipulag Hafnarfjarðar sem gilti fyrir tímabilið 2005-2025 gerði ráð fyrir við samþykkt þess.
Einnig er gerð athugasemd við að aðalskipulagstillagan geri ráð fyrir jarðgöngum Reykjanesbrautar um Setbergshamar sem gildandi Aðalskipulag Garðarbæjar 2016-2030 gerir ekki ráð fyrir. Þegar tillögur um útfærslu endurbóta á stofnbrautakerfi á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar liggja fyrir verður hægt að vinna að tillögum að breytingum á aðalskipulagsáætlunum beggja sveitarfélaga.
Garðabær leggur áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu og samráðs sveitarfélaganna og að í aðalskipulaginu verði skýrt kveðið á um að virkt og tímanlegt samráð milli nágrannasveitarfélaga verði í fyrirrúmi vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu eða framkvæmda sem gæta áhrifa á sveitarfélagamörkum. Mikilvægt er að samræma lausnir og tryggja að ákvarðanir stuðli að skilvirkni, góðri nýtingu lands og innviða og þjónustustigi íbúa beggja sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (969). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Hafnarfjarðar, sem hefur verið vísað til forkynningar. Embættismenn og ráðgjafar Garðabæjar og Hafnarfjarðar hafa undanfarið verið í gagnlegu samráði vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis sem er því í mótun beggja vegna sveitarfélagsmarka. Garðabær ítrekar þær athugasemdir sem skipulagsstjóri Garðabæjar gerði við tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar og nær til Hrauns vestur en þar segir m.a.: "Þær skipulagsbreytingar sem boðaðar eru í tillögu að rammahluta aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til Hrauna vestur eru mjög umfangsmiklar svo vægt sé til orða tekið. Garðabær telur jákvætt að byggðin styrki áform um öflugar almenningssamgöngur um samgöngu-og þróunarás um Hafnarfjarðarveg en hefur um leið áhyggjur af stöðu mála hvað áhrif á umferðarkerfi varðar. Á meðan að ekki liggur fyrir stefna um útfærslur á stofnbrautakerfinu sem tengir saman Hafnarfjarðarveg, Álftanesveg, Reykjanesbraut og Flóttamannaveg er erfitt að taka afstöðu til þátta eins og byggingarmagns, íbúðafjölda, umferðarflæðis og landnotkunar almennt. Tekið er undir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að áhersla sé lögð á mikilvægi þess að í komandi skipulags-og uppbyggingarferli sé virkt samtal við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélögum um hönnun og útfærslu aðgerða sem líklegar eru til að draga úr álagi skv. samgöngumati." Skipulagsnefnd hefur ekki frekari ábendingar á þessu stigi en áskilur sér allan rétt til þess að gera það á síðari stigum aðalskipulagsferlis.
Bæjarráð Garðabæjar
03
43. (2191). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Hafnarfjarðar, sem hefur verið vísað til forkynningar.
Embættismenn og ráðgjafar Garðabæjar og Hafnarfjarðar hafa undanfarið verið í gagnlegu samráði vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis sem er því í mótun beggja vegna sveitarfélagsmarka.
Garðabær ítrekar þær athugasemdir sem skipulagsstjóri Garðabæjar gerði við tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar og nær til Hrauns vestur en þar segir m.a.:
"Þær skipulagsbreytingar sem boðaðar eru í tillögu að rammahluta aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til Hrauna vestur eru mjög umfangsmiklar svo vægt sé til orða tekið. Garðabær telur jákvætt að byggðin styrki áform um öflugar almenningssamgöngur um samgöngu-og þróunarás um Hafnarfjarðarveg en hefur um leið áhyggjur af stöðu mála hvað áhrif á umferðarkerfi varðar. Á meðan að ekki liggur fyrir stefna um útfærslur á stofnbrautakerfinu sem tengir saman Hafnarfjarðarveg, Álftanesveg, Reykjanesbraut og Flóttamannaveg er erfitt að taka afstöðu til þátta eins og byggingarmagns, íbúðafjölda, umferðarflæðis og landnotkunar almennt. Tekið er undir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að áhersla sé lögð á mikilvægi þess að í komandi skipulags-og uppbyggingarferli sé virkt samtal við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélögum um hönnun og útfærslu aðgerða sem líklegar eru til að draga úr álagi skv. samgöngumati."
Skipulagsnefnd hefur ekki frekari ábendingar á þessu stigi en áskilur sér allan rétt til þess að gera það á síðari stigum aðalskipulagsferlis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
17. fundur
Stefán Thors aðalskipulagsráðgjafi hjá VSÓ gerði grein fyrir tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Hafnarfjarðar, á síðasta fundi skiplagsnefndar, sem hefur verið vísað til forkynningar.
Embættismenn og ráðgjafar Garðabæjar og Hafnarfjarðar hafa undanfarið verið í gagnlegu samráði vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis sem er því í mótun beggja vegna sveitarfélagsmarka.
Garðabær ítrekar þær athugasemdir sem skipulagsstjóri Garðabæjar gerði við tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar og nær til Hrauns vestur en þar segir m.a.:
"Þær skipulagsbreytingar sem boðaðar eru í tillögu að rammahluta aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til Hrauna vestur eru mjög umfangsmiklar svo vægt sé til orða tekið. Garðabær telur jákvætt að byggðin styrki áform um öflugar almenningssamgöngur um samgöngu-og þróunarás um Hafnarfjarðarveg en hefur um leið áhyggjur af stöðu mála hvað áhrif á umferðarkerfi varðar. Á meðan að ekki liggur fyrir stefna um útfærslur á stofnbrautakerfinu sem tengir saman Hafnarfjarðarveg, Álftanesveg, Reykjanesbraut og Flóttamannaveg er erfitt að taka afstöðu til þátta eins og byggingarmagns, íbúðafjölda, umferðarflæðis og landnotkunar almennt. Tekið er undir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að áhersla sé lögð á mikilvægi þess að í komandi skipulags-og uppbyggingarferli sé virkt samtal við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélögum um hönnun og útfærslu aðgerða sem líklegar eru til að draga úr álagi skv. samgöngumati."
Skipulagsnefnd hefur ekki frekari ábendingar á þessu stigi en áskilur sér allan rétt til þess að gera það á síðari stigum aðalskipulagsferlis.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
16. fundur
Stefán Thors aðalskipulagsráðgjafi hjá VSÓ gerðu grein fyrir tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem hefur verið vísað til forkynningar. Afgreiðslu málsins frestað.