3. fundur
3. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.03.2024
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2403295
01
Skerpluholt 11 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og gatnahönnuðar.
Málsnúmer 2403346
02
Ægisgrund 5 grindverk/hýsi- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðinga á lóðarmörkum að götunni Þórsgrund allt að 1,2-1,4 m yfir landi og að lóðinni Þórsmörk 1,4 til 1,6 m.
Einnig er spurt hvort heimilað verði að reisa smáhýsi, rétt tæplega 15 m² að flatarmáli á norður hluta lóðar í 1 m fjarlægð að lóðarmörkum að Þórsmörk.
Í deiliskipulagi Ása og Grunda er ekki kveðið á um smáhýsi og er því miðað við ákvæði byggingarreglugerðar. Hæð fyrihugaðs smáhýsis kemur ekki fram í fyrirspurn en Skipulagsstjóri gerir ráð fyrir að það sé ekki yfir 2,5 m eins og kveðið er á í byggingarreglugerð í ákvæðum um smáhýsi.
Skipulagsstjóri heimilar fyrir hönd Garðabæjar sem er eigandi Þósmerkur og götusvæðis Þórsgrundar að reistar verði girðingar eins og óskað er eftir. Bent er á að samþykki eigenda aðliggjandi lóðar þarf að liggja fyrir þegar girðingar eru reistar á lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri samþykkir staðsetningu smáhýsis í 1m fjarlægð frá lóðarmörkum að Þórsmörk með því skilyrði að eigendur aðliggjandi lóða, Ægisgrundar 3 og 7 áriti á teikningu að þeir geri ekki athugasemd við útfærslu smáhýsis á þessum stað.
Málsnúmer 2402174
03
Skerpluholt 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Uppdrættir gera ráð fyrir því að grunnflötur húss sé 240 m² en deiliskipulag heimilar 225 m².
Með vísan í bókun skipulagsnefndar frá 14. mars sl. um Skerpuholt 3 og Skerpluholt 5 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað 240 m² heildarflatarmál varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.