Beint í efni

Ægisgrund 5 grindverk/hýsi- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2403346

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

3. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðinga á lóðarmörkum að götunni Þórsgrund allt að 1,2-1,4 m yfir landi og að lóðinni Þórsmörk 1,4 til 1,6 m.
Einnig er spurt hvort heimilað verði að reisa smáhýsi, rétt tæplega 15 m² að flatarmáli á norður hluta lóðar í 1 m fjarlægð að lóðarmörkum að Þórsmörk.
Í deiliskipulagi Ása og Grunda er ekki kveðið á um smáhýsi og er því miðað við ákvæði byggingarreglugerðar. Hæð fyrihugaðs smáhýsis kemur ekki fram í fyrirspurn en Skipulagsstjóri gerir ráð fyrir að það sé ekki yfir 2,5 m eins og kveðið er á í byggingarreglugerð í ákvæðum um smáhýsi.

Skipulagsstjóri heimilar fyrir hönd Garðabæjar sem er eigandi Þósmerkur og götusvæðis Þórsgrundar að reistar verði girðingar eins og óskað er eftir. Bent er á að samþykki eigenda aðliggjandi lóðar þarf að liggja fyrir þegar girðingar eru reistar á lóðarmörkum.

Skipulagsstjóri samþykkir staðsetningu smáhýsis í 1m fjarlægð frá lóðarmörkum að Þórsmörk með því skilyrði að eigendur aðliggjandi lóða, Ægisgrundar 3 og 7 áriti á teikningu að þeir geri ekki athugasemd við útfærslu smáhýsis á þessum stað.