44. fundur
44. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
05.11.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Rauða krossins í Garðabæ varðandi niðurfellingu fasteignagjalda fyrir árin 2013 og 2014, dags. 28.10.13.
Bæjarráð samþykkir að veita Rauða krossinum í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 541.356 vegna greiðslu fasteignagjalda fyrir árið 2013.
02
Minnisblað mannauðsstjóra varðandi endurskoðun mannauðsstefnu Garðabæjar.
Bæjarráð lýsir ánægju með að hafin er vinna við endurskoðun mannauðsstefnu Garðabæjar en í minnisblaðinu kemur fram að skipaður hefur verið starfshópur til að koma að verkefninu og er stefnt að því að drög að endurskoðaðri stefnu liggi fyrir á vormánuðum 2014.
03
Bréf Stígamóta varðandi styrk vegna ársins 2014, dags. 20.10.13.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
04
Bréf GKG varðandi styrk vegna byggingar klúbbhúss, dags. dags. í okt.´13.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um áætlanir varðandi framgang verksins og fjármögnun.
05
Bréf GKG varðandi styrk vegna Íslandsmóts í höggleik, dags. 25.10.13.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um nánari útfærslu málsins.
06
Bréf Samtaka um kvennaathvarf varðandi styrk vegna ársins 2014, dags. í okt.´13.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
07
Svar við fyrirspurn Fólksins í bænum um viðskipti Klasa og Garðabæjar, dags. 01.11.13.
Lagt fram. María Grétarsdóttir óskar eftir að ítarlegri samantekt á fjárskuldbindingum í viðskiptum Klasa og Garðabæjar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram nánari samantekt vegna málsins.
08
Svar við fyrirspurn frá Steinþóri Einarssyni bæjarfulltrúa varðandi eignir sem í eigu bæjarins og eru ekki nýttar fyrir eiginlega starfsemi bæjarins, dgs. 19.10.13.
Lagt fram.
09
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 25.10. - 1.11.2013.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 25.10 ? 01.11.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Langalína 13, Miðhraun 4 og Bæjargata 1 ? 9. Bæjarráð frestar afgreiðslu á samþykkt byggingarfulltrúa vegna Miðhrauns 14.
10
Erindi Skógræktarfélags Reykjavíkur um niðurfellingu fasteignagjalda.
Bæjarráð samþykkir að fella niður innheimtu fasteignagjalda sem lögð eru á Skógræktarfélag Reykjavíkur að fjárhæð kr. 1.297.725 þar sem eignarandlag er ekki til staðar, en félagið er umsjónaraðili lands í Heiðmörk samkvæmt leigusamningi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um leiðréttingu í fasteignaskrá.
11
Fjárstreymisyfirlit janúar - september 2013.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir fjárstreymisyfirliti fyrir tímabilið janúar ? september 2013.
12
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.
Lögð var fram og kynnt tillaga um álagningu gjalda og gjaldskrárhækkanir árið 2014.
13
Ný stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands
Bæjarráð samþykkir að vísa nýrri stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands til afgreiðslu bæjarstjórnar.