10. fundur
10. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.03.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrk vegna tískusýningar nemenda í fata- og textílhönnun í FG vorið 2014.
Lögð fram til kynningar afgreiðsla menningar- og safnanefndar Garðabæjar um styrk til nemenda í fata- og textílhönnun FG að fjárhæð kr. 65.000.
02
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru þar sem kært er deiliskipulag Garðahverfis, dags. 28.02.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
03
Bréf íþróttafulltrúa vegna erindis fimleikadeildar um stuðning vegna NM í hópfimleikum unglinga, dags.04.03.14.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra og íþróttafulltrúa.
04
Bréf stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins um rekstraryfirlit 2013, dags. 25.02.114.
Lagt fram.
05
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar um styrkbeiðni vegna útgáfu geisladisks.
Lögð fram til kynningar afgreiðslu menningar- og safnanefndar Garðabæjar um synjun á styrk vegna útgáfu á geisladiski.
06
Bréf forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs um launamál umsjónarkennara við Garðaskóla, dags. 06.03.14.
Í bréfinu er gerð grein fyrir mistökum við launaafgreiðslu vegna umsjónartíma kennara í Garðaskóla. Fyrir liggur bráðabirgðaútreikningur á ógreiddum launum miðað við uppgjör allt til til ársins 2009 að fjárhæð um 10,0 mkr.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
07
Bréf Eslöv um vinabæjamót í Eslöv í júní 2014, dags. 28.02.14.
Í bréfinu er boðað til vinabæjarmóts í Eslöv dagana 26. júní - 29. júní 2014.
08
Bréf Safnaráðs um viðurkenningu Hönnunarsafns Íslands sem safns, dags. 17.02.14.
Lagt fram.
11
Bréf fjármála- og efnahagsráðuneytisins um stofnun fólkvangs í Vífilsstaðahrauni í Garðabæ, dags. 03.03.14.
Lagt fram bréf fjármála- og efnahagsráðuneytisins þar sem fallist er á eindregna ósk Garðabæjar um að friðlýsa Vífilsstaðahraun sem fólkvang samkvæmt ákvæðum laga um náttúruvernd.
12
Bréf félags eldri borgara í Garðabæ um styrk vegna ársins 2014, dags. 25.02.14.
Bæjarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Garðabæ styrk til starfsemi félagsins að fjárhæð kr. 400.000. Bæjarráð samþykkir að við greiðslu styrksins skuli liggja fyrir ársskýrsla og ársreikningur félagsins.
13
Launagreining 2013
Á fund bæjarráðs mætti Vilhjálmur K. Haraldsson, mannauðstjóri og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum launagreiningar er gerð var á grundvelli greiddra launa hjá Garðabæ í október 2013. Launagreiningin er gerð í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar frá því 16. maí 2013 um að gera úttekt og greiningu á launajafnrétti hjá starfsmönnum Garðabæjar. Við gerð launagreiningar var unnið með laun starfsmanna í 70 - 100% starfi eða með laun 112 karla og 449 kvenna.$line$$line$Meginniðurstaðan er að ekki er marktækur munur á launum karla og kvenna hjá Garðabæ. $line$$line$Niðurstöður launagreiningarinnar verða kynntar á sameiginlegum fundi með forstöðumönnum stofnana Garðabæjar sem fyrirhugaður er miðvikudaginn 12. mars n.k.
14
Bréf Líkamsræktar B&Ó um styrk vegna heilsueflingardags, dags. 03.03.14.
Bæjarráð samþykkir að veita bréfritara styrk að fjárhæð kr. 150.000 til vegna heilsueflingardags í Garðabæ og vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði.
15
Bréf kennara við FG um styrk vegna þátttöku leiklistardeildar FG í evrópsku samstarfsverkefni, dags. 04.03.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
16
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 28.02.14-07.03.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 28.02. ? 07.03.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Dalakur 1 og Kríunes 16.
17
Styrkbeiðni FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga.
Bæjarráð samþykkir veita FAAS styrk að fjárhæð kr. 200.000.
18
Kaup á húsnæði við Garðatorg 7
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um kaup á húsnæði á 1. hæð við Garðatorg fyrir starfsemi bæjarins.$line$$line$Afgreiðslu frestað.
19
Tilboð í íbúðir við Lækjarfit 7.
Bæjarráð samþykkir gagntilboð eiganda íbúðar við Lækjarfit 7 (207-1679) að fjárhæð kr. 26.100.000.$line$$line$Bæjarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi og gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2014 samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
20
Bréf Skrímsl ehf um framlengingu á leigusamningi, dags. 04.03.14.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um framlengingu leigusamnings um húsnæði fyrir hljómsveitina Of Monsters And Men og hugmyndir um nýtingu 1. hæð hússins í framtíðinni fyrir hljómsveitir$line$$line$Bæjarráð tekur jákvætt í málið og vísar því til áframhaldandi vinnslu bæjarstjóra.