Beint í efni

Launagreining 2013

Málsnúmer 1310262

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. fundur

Á fund bæjarráðs mætti Vilhjálmur K. Haraldsson, mannauðstjóri og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum launagreiningar er gerð var á grundvelli greiddra launa hjá Garðabæ í október 2013. Launagreiningin er gerð í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar frá því 16. maí 2013 um að gera úttekt og greiningu á launajafnrétti hjá starfsmönnum Garðabæjar. Við gerð launagreiningar var unnið með laun starfsmanna í 70 - 100% starfi eða með laun 112 karla og 449 kvenna.$line$$line$Meginniðurstaðan er að ekki er marktækur munur á launum karla og kvenna hjá Garðabæ. $line$$line$Niðurstöður launagreiningarinnar verða kynntar á sameiginlegum fundi með forstöðumönnum stofnana Garðabæjar sem fyrirhugaður er miðvikudaginn 12. mars n.k.