13. (2066). fundur
13. (2066). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
28.03.2023
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2208619
01
Ársreikningur Garðabæjar 2022.
Ómar Gunnar Ómarsson, löggiltur endurskoðandi og Bryndís Sigríksdóttir, viðskiptafræðingur, starfsmenn Enor, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds mættu á fund bæjarráðs.
Ómar Gunnar gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2022, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2022 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjarstjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 13. apríl 2023 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 4. maí 2023.
Málsnúmer 2211118
02
Tillögur um breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála í innviðaráðuneytinu, Guðni Geir Einarsson, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Gústav Aron Gústavsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga mættu á fund bæjarráð til að gera nánari grein fyrir tillögum að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fulltrúar Jöfnunarsjóðs gerðu almennt grein fyrir starfsemi sjóðsins og fóru nánar yfir tillögur að breytingum sem birtar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem samið hefur verið í innviðaráðuneytinu ásamt skýrslu starfshóps þar sem lagðar eru fram tillögur um ýmsar breytingar og tillaga um nýtt líkan sem leysir tiltekin framlög Jöfnunarsjóðs af hólmi og sameinar þau í eitt almennt
jöfnunarframlag.
Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Viðreisn fellst ekki á afstöðu meirihlutans þess efnis að brýnt sé að mótmæla harðlega tillögu um frekari jöfnun á framlögum úr jöfnunarsjóði. Jöfnunarsjóður er mikilvægt tæki til að jafna stöðu sveitarfélaga um allt land. Tækifæri Garðabæjar til að auka tekjur sínar verulega liggja ljósar fyrir. Garðabær er eitt af fáum sveitarfélögum sem halda möguleikum til tekna í lágmarki.
Enn frekar er mikilvægt að benda á að í ljósi breyttrar aðstæðna í sveitarfélaginu með tilkomu fjölbreyttari íbúasamsetningu er tímabært að endurskoða ákvörðun um útsvarsprósentu til þess að mæta auknum þunga í allri grunnþjónustu sem sveitarfélaginu ber skylda til að sinna.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, oddviti Viðreisnar.
„Fulltúrar Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði árétta bókun frá fundi bæjarráðs 21. mars sl. þar sem gerðar eru athugasemdir við ákvæði í drögum að frumvarpi um að ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skuli lækka framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til viðkomandi sveitarfélags að fjárhæð sem nemur mismun á hámarksálagningu útsvars og álagningu sem sveitarfélagið hefur samþykkt eins og lögmælt er. Í tilviki Garðabæjar getur slík skerðing verið um 600 m.kr. Ákvæðið vegur að sjálfstjórnarrétti sveitarfélaga til að ráða málum sínum sjálf og felur í sér þvingun gagnvart sveitarfélögum til að leggja á hámarksútsvar sem fær ekki staðist með vísan til þess að það er á valdi hverrar sveitarstjórnar að ákvarða álagningarhlutfall útsvars innan ákveðinna marka samkvæmt ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 m.s.br. Þá verður að telja að slík þvingunaraðgerð geti ekki samrýmst markmiðum og hlutverki Jöfnunarsjóðs um að koma að útgjaldaþörf sveitarfélaga m.a. vegna verkefna sem sveitarfélög hafa tekið við af ríkinu eins og rekstur grunnskólans. Bent er á að við þessar aðstæður væri eðlilegt að endurskoða hlutdeild Jöfnunarsjóðs af útsvarsstofni sveitarfélaga vegna rekstur grunnskólans en hlutdeildin hefur verið óbreytt 0,77% frá árinu 1996. Á sama tíma hefur starfsumhverfi grunnskólans tekið miklum breytingum og er orðið mun einsleitara.“
Björg Fenger.
Margrét Bjarnadóttir.
Gunnar Valur Gíslason.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda umsögn í samráðgátt stjórnvalda með athugasemdum við drög að frumvarpi að heildarlögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga ásamt því að greina frá ofangreindum bókunum.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Sigríður Logadóttir, lögfræðingur og persónufulltrúi sátu fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2209390
03
Smáraflöt 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að leyfa Birni Helgasyni, kt. 191578-3729, leyfi fyrir viðbyggingu og stækkun bílskúrs núverandi einbýlishúss að Smáraflöt 5.
Málsnúmer 2302259
04
Skógarlundur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að leyfa Katrínu Ýr Magnúsdóttur, kt. 240586-3209, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Skógarlundi 10.
Málsnúmer 2303466
05
Drög að samstarfssamningi Garðabæjar og Bessastaðasóknar um æskulýðsstarf.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun samnings við Bessastaðasókn um æskulýðsstarf til að gilda til ársloka ársins 2025 og felur bæjarstjóra undirritun samningsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2301592
06
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögu kjörnefndar í stjórn sambandsins, dags. 23.03.23.
Lagt fram.