Beint í efni

2. fundur

14.01.2014
Bæjarráð Garðabæjar

2. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

14.01.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1307042

01

Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir kauptilboðum er bárust í skuldabréfaútboði Garðabæjar vegna lántöku allt að 450 mkr. en 24 tilboð bárust. $line$$line$Fjármálastjóri lagði fram bréf KPMG varðandi umsögn um útboð skuldabréfa Garðabæjar í umsjón Íslandsbanka, dags 13.01.14.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra heimild til að semja um lántöku allt að fjárhæð 400,0 mkr á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1401188

02

Skýrsla landvarðar Reykjanesfólkvangs árið 2013.

Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 1401187

03

Tillaga um styrk til starfsmanna Garðabæjar til að stunda heilsurækt á árinu 2014, dags. 08.01.14.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um íþróttastyrk til starfsmanna.$line$$line$?Starfsmenn Garðabæjar sem hafa starfað samfellt hjá bænum í fjóra mánuði og eru í 30% starfshlutfalli eða meira skulu eiga rétt á að kaupa árskort í sundlaugum Garðabæjar fyrir kr. 11.000.?

Málsnúmer 1401118

04

Bréf sýslumanns varðandi umsagnir vegna tækifærisleyfa fyrir þorrablót Stjörnunnar og þorrablót kvenfélagsins á Álftanesi, dags. 06.12.14.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðin leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1305489

05

Bréf sýslumanns varðandi umsókn um heimagistingu að Asparlundi 9, dags. 16.05.13.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að það verði veitt tímabundið til reynslu í eitt ár.

Málsnúmer 1401144

06

Verkfallslisti 2014.

Bæjarritari gerði grein fyrir drögum að skrá yfir þá starfsmenn hjá sveitarfélaginu sem ekki hafa heimild til að fara í verkfall.$line$$line$Fram kom að við gerð listans hefur verið haft samráð við viðkomandi stéttarfélög og liggur fyrir að Starfsmannafélag Garðabæjar gerir athugasemd við að störf upplýsingastjóra og forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands eru tilgreind á listanum. Bæjarritari gerði grein fyrir rökstuðningi sem lagður er til grundvallar því að þessi störf eigi ekki að hafa heimild til að fara í verkfall.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1401114

07

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um flutning stjórnsýslu um málefni hreindýra, 202. mál, dags. 06.01.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1401142

08

Bréf Tennisfélags Garðabæjar varðandi þjónustsamning, dags. 06.01.14.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1401051

09

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 03.01.-10.01.2014.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 03.01. ? 10.01.2104 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Kríunes 16 og Rjúpnahæð 14.

Málsnúmer 1311472

10

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar á styrkbeiðni Camerarctica vegna tónleika í Garðakirkju desember 2013, dags. 04.12.13.

Lögð fram til kynningar samþykkt menningar- og safnanefndar um styrkveitingu að fjárhæð kr. 90.000 til Kammerhópsins Camerarctica vegna tónleikahalds í Garðakirkju í desember.

Málsnúmer 1401196

11

Bréf Orkuveitu Reykjavíkur varðandi breytingar hjá fyrirtækinu, dags. 06.01.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1310263

12

Skýrsla starfshóps bæjarstjórnar varðandi gerð tillagna um frekari uppbyggingu og endurbætur á núverandi aðstöðu til íþrótta- og tómstundaiðkunar í bæjarfélaginu.

Erling Ásgeirsson, formaður starfshópsins fjallaði um störf hópsins og gerði nánari grein fyrir samantekt sem fram kemur í kaflanum um framkvæmdir í forgangi árin 2014, 2015 og 2016. $line$$line$Bæjarráð samþykkir að beina því til ÍTG að efna til málþings með þjálfurum, forsvarsmönnum íþróttafélaga, og foreldrum í bænum um megináherslur í stefnu ÍSÍ um barna- og unglingaíþróttir.$line$$line$Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði og til frekari umfjöllunar í bæjarstjórn.