Beint í efni

44. fundur

13.11.2012
Bæjarráð Garðabæjar

44. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.11.2012

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

• Erling Ásgeirsson - Aðalmaður
• Stefán Snær Konráðsson - Aðalmaður
• María Grétarsdóttir - Varamaður
• Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
• Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
• Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
• Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

• Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1211211

01

Bréf framkvæmdastjóra Holtsbúðar varðandi framtíðarskipulag á rekstri hjúkrunarheimilis og þjónustu við eldri borgara, dags. 09.11.12.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1211202

02

Bréf Hrafnhildar Hjálmarsdóttur varðandi rekstur fótaaðgerðarstofu á hjúkrunarheimilinu á Sjálandi, dags. 10.11.12.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 2010120061

03

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Arnarness, dags. 30.10.12.

Á fund bæjarráðs mætti skipulagsstjóri og gerði grein fyrir málinu.

Í bréfi Skipulagsstofnunar er gerð athugasemd við að auglýsing um samþykkt deiliskiplags fyrir Arnarnes verði birt í B-deild Stjórnartíðinda þar sem landnotkun í deiliskipulaginu efst á hæðinni þ.e. útivistarsvæðið, er ekki í samræmi við landnotkun í aðalskipulagi Garðabæjar 2004 - 2016 sem er á þessu svæði blanda af íbúðarsvæði og svæði fyrir þjónustustofnanir.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir minnisblaði um málið, dags. 12. nóvember sl. þar sem fram kemur tillaga um að bregðast við athugasemdinni á þann hátt að afmarka deiliskipulagssvæðið þannig að umrætt svæði falli þar fyrir utan. Í framhaldinu verður síðan unnið deiliskipulag fyrir svæðið og tillaga auglýst ásamt tillögu um breytingu á aðalskipulagi. Í minnisblaðinu er einnig gerð grein fyrir minniháttar leiðréttingum vegna athugasemda Skipulagsstofnunar.

Fram kom hjá skipulagsstjóra að verði ekki fallist á tillögu hans í málinu er nauðsynlegt að auglýsa tillögu að deiliskipulaginu að nýju ásamt tillögu að breytingu á aðalskipulagi.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1211135

04

Tillaga SE um samráðsvettvang frjálsra félagasamtaka í Garðabæ og Álftanesi, dags. 07.11.12.

Bæjarráð vísar tillögunni til frekari úrvinnslu bæjarstjóra í samráði við flutningsmann tillögunnar.

Málsnúmer 1211070

05

Bréf sýslumanns varðandi umsókn um rekstrarleyfi fyrir veitingastofu og greiðasölu að Lyngási 17, dags. 02.11.12.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1210170

06

Erindi Landssambands hestamannafélaga varðandi skráningu reiðleiða, kortasjá, dags. 03.10.12.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 2009020226

07

Bréf Hraunavina varðandi ályktun aðalfundar um endurskoðun aðalskipulags og frestun framkvæmda við nýjan Álftanesveg, dags. 09.11.12.

Ályktuninni er beint til nýs sveitarfélags sem ekki hefur formlega verið stofnað samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga.

Bæjarráð bendir á að á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 4. nóvember 2010 var samþykkt tillaga skipulagsnefndar um að ekki væri þörf á að ráðast í endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar , sbr. 5. mgr. 16. gr. þágildandi skipulagslaga nr. 73/1997.

Bæjarstjóra falið að svara bréfritara.

Málsnúmer 1211212

08

Bréf stjórnar Snorrasjóðs varðandi styrk vegna Snorraverkefnis 2013, dags. 08.11.12.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 1211210

09

Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og skipulagsmála varðandi kæru vegna deiliskipulags fyrir Garðahverfi, dags. 07.11.12

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 1211195

10

Bréf nefndasviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs, dags. 08.11.12.

Lagt fram.

Málsnúmer 1211193

11

Bréf Alþjóðaskólans á Íslandi varðandi viðurkenningu skv. reglugerð nr. 699/2012, dags. 07.11.12.

Bæjarráð samþykkir stofnun Alþjóðaskólans í Garðbæ og fjárframlög til hans samkvæmt lögum með vísan til c-liðar reglugerðar nr. 699/2012 um viðurkenningu grunnskóla sem reknir eru af öðrum en sveitarfélögum og skólahald samkvæmt erlendri eða alþjóðlegri námsskrá og námsskipan.

Málsnúmer 1211273

12

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 19.10.-9.11.2012

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 19.10. - 09.11.2012 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.

Um er að ræða byggingarleyfi vegna eftirfarandi eigna: Kauptún 4 og Kauptún 6.

Málsnúmer 1211137

13

Bréf Landgræðslu ríkisins varðandi uppgræðslu í Krýsuvík 2013, dags. 05.11.12.

Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 1211122

14

Bréf samtakanna Landsbyggðin lifi varðandi styrk vegna starfsemi samtakanna, dags, 02.11.12.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 1201161

15

Bréf Sorpu bs. varðandi rekstraráætlun 2013 og fimm ára rekstraráætlun, 2013-2017, dags. 01.11.12.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 1211215

16

Bréf Varasjóðs húsnæðismála varðandi ráðstefnu um húsnæðismál sveitarfélaga, mótt. 09.11.12.

Lagt fram.

Málsnúmer 1210379

17

Undirbúningur að stofnun nýs sveitarfélags.

Rætt var um hvernig staðið er að undirbúningi að stofnun nýs sveitarfélags samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Frekari umræðu og ákvörðun um málið vísað til stjórnar sem bæjarstjórnir sveitarfélaganna hafa kosið til að undirbúa málið.

Málsnúmer 1208403

18

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2013.

Bæjarstjóri kynnti drög að breyttri fjárhagsáætlun þar sem tekið hefur verið tillit til viðbóta í rekstri sem nemur 107,0 mkr.

Málsnúmer 1111184

19

Viljayfirlýsing í tengslum við samning um uppbyggingu á Kjóavöllum, dags. 8. júní 2012.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viljayfirlýsingu Kópavogs og Garðabæjar gagnvart hestamannafélögum á Kjóavöllum þar sem fram kemur nákvæmt dagsetning á greiðslum Garðabæjar á árlegum framlögum samkvæmt samningi árin 2012-2016.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti undirritun viljayfirlýsingarinnar.