42. fundur
42. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.10.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Helgi Pétursson - varamaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1301109
01
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilð 11.10.-18.10.2013.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 04.10. - 11.10.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Miðskóga 15 og Smáratún 8.
Málsnúmer 1310231
03
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi dag íslenskrar tungu 2013, dags. 09.10.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.
Málsnúmer 1106131
04
Drög að samkomulagi varðandi tilraunaverkefni um sameiginlegar bakvaktir í barnaverndarmálum.
Bæjarráð vísar samningnum til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1310211
05
Bréf Landssamtaka hjólreiðamanna varðandi hjólreiðar, samgöngusamninga ofl. mótt. 14.10.13.
Með bréfinu fylgir fræðsluefni um hjólreiðar sem samtökin hafa nýlega gefið út. Lagt fram.
Málsnúmer 1310190
06
Drög að siðareglum kjörinna fulltrúa.
Lögð fram rædd.
Málsnúmer 1310287
07
Bréf Samfés varðandi styrk vegna hönnunarkeppni unglinga, dags. 16.10.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fræðslu- og menningarsviðs.
Málsnúmer 1307431
08
Útboð trygginga Garðabæjar árið 2013.
Bæjarritari gerði grein fyrir drögum að skilmálum vegna útboðs á tryggingum Garðabæjar sem gert er ráð fyrir að auglýst verði um næstu helgi. Bæjarráð samþykkir breytingu varðandi tryggingar skólabarna þannig að tryggingin nái til allra barna með lögheimili í Garðabæ óháð skólavist og að hún verði jafnframt látin ná til íþrótta- og tómstundastarfs
Málsnúmer 1309476
09
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um leikskóla að loknu fæðingarorlofi,dags. 11.10.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1307042
10
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.
Á fund bæjarráð mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning að framlagningu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014. Fjármálastjóri fór yfir drög að ramma er byggir á áætlun forstöðumanna en án óska um viðbótarfjárveitingar. Bæjarstjóri kynnti drög að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2014, 2015 ? 2018.
Málsnúmer 1310361
11
Bréf SSH varðandi tillögu að eigendasamkomulagi aðildarsveitarfélaga SORPU bs. um framtíðarlausnir vegna meðhöndlunar úrgangs, dags. 21.10.13.
Lögð fram tillaga að eigendasamkomulagi Sorpu bs. um famtíðarlausnir vegna meðhöndlunar úrgangs sem m.a. byggir á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009 ? 2020 og skiptist í tvo meginkafla. a) Aðgerðir vegna starfsemi SORPU bs. í Álfsnesi, þ.e. uppbyggingu gas- og jarðgerðarstöðvar, aðgerða og tímasetninga við lokun á Gými, móttöku og förgun á lyktarsterkum úrgangi og aðgerðar- og tímaviðmiðum vegna lokunar urðunarstaðar í Álfsnesi. b) Mótun framtíðarstefnu og mögulegs samstarfs sorpsamlaga sem standa að svæðisáætlun um meðhöndlun og förgun úrgangs 2009 ? 2020 um markvissar aðgerðir á grundvelli megintillagna í svæðisáætluninni. Bæjarráð samþykkir eigendasamkomulagið fyrir sitt leyti en gerir fyrirvara um endanlegan kostnað en í samkomulaginu er gengið út frá því að hann verði um 2 milljarðar króna.
Málsnúmer 1210342
12
Bréf stjórnar Slökkviliðs höfuðborgrsvæðisins um verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21.10.13.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samþykkt stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um að tilkynna heilbrigðisráðherra um verklok þjónustu vegna sjúkraflutninga en í fjárlagfrumvarpi kemur fram að ríkið gerir ekki ráð fyrir að samkomulag um endurskoðaða kostnaðarskiptingu verði staðfest.