Beint í efni

47. fundur

26.11.2013
Bæjarráð Garðabæjar

47. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

26.11.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1311366

02

Bréf undirbúningsnefndar um kvennahlaup varðandi gerð minnisvarða, dags. 19.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1311549

03

Bréf Bessastaðasóknar um endurnýjun samings um æskulýðsstarf, dags. 19.11.13

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar og felur bæjarstjóra að leggja fram endurnýjuð drög að nýjum samningi.

Málsnúmer 1311550

04

Bréf Bessastaðasóknar varðandi samvinnu um aukna þjónustu fyrir eldri borgara á Álftanesi, dags. 19.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Málsnúmer 1311527

05

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um lífsýnasöfn, 19.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1311519

06

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, dags. 19.11.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1311518

07

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttir um skólamál, dags. 12.11.13

Bæjarráð felur forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs að senda bæjarfulltrúum upplýsingar um niðurstöður í samræmdum prófum þegar þær liggja fyrir.

Málsnúmer 1311517

08

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur, um sögu Garðabæjar, 11.11.13

Lagt fram svar við fyrirspurn, dags. 15.11.2013.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram nánari sundurliðun vegna skiptingar kostnaðar milli ritnefndar, höfundar og bókaútgáfunnar Opnu.

Málsnúmer 1311511

09

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi gjaldskrá fyrir árið 2014, dags. 15.11.13.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1311499

10

Bréf UMFÍ varðandi iðkendur í íþrótta- og tómstundastarfi, dags. 15.11.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1301109

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 15.11. - 22.11.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 11. - 15.11. ? 22.11.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Sunnakur 4 og Blikastíg 19.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu á samþykkt byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi vegna Garðatorgs 4.

Málsnúmer 1311526

12

Bréf Barnaheilla varðandi þátttöku í verkefninu Fri for Mobberi, dags. 15.11.13.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1311583

13

Samstarf við vinabæi Álftaness

Bæjarstjóri gerði grein fyrir bréfi Gjövik, dags. 18.11.13 þar sem óskað er eftir afstöðu bæjarins til framtíðar vinabæjarsamstarfs við fyrrum vinabæi Álftaness.$line$$line$$line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til umfjöllunar hverfisstjórnar Álftaness.

Málsnúmer 1212064

14

Fjárhagsáætlun 2013 - Viðaukar samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga

Á fund bæjarrásð mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir viðaukum við fjárhagsáætlun 2013.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2013 til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Viðauki 11 Grunnskólar vegna nemendafjölda kr. 4.000.000$line$Viðauki 12 Leikskólar vegna fjölgunar barna kr. 18.987.372$line$Viðauki 13 Tónlistarskóli vegna sameiningar skóla kr. 7.600.000$line$Viðauki 14 Bæjarráð vegna fjölgunar áheyrnarftr. kr. 2.042.352$line$Viðauki 15 Tónleikar Of Monsters And Man kr. 13.300.000$line$Viðauki 16 Framkvæmdir, tilfærsla og kaup á Lækjarfit 3 kr. 25.000.000$line$Viðauki 17 Yfirtaka Holtsbúðar með stofnun Ísafoldar kr. 94.102.901

Málsnúmer 1307042

15

Fjárhagsáætlun 2014

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar en boðað er til millifundar bæjarstjórnar 28. nóvember 2013.