Beint í efni

22. fundur

03.06.2014
Bæjarráð Garðabæjar

22. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

03.06.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1405429

01

Bréf Samiðn varðandi aðild Garðabæjar að kjarasamningi Samband ísl. sveitarfélaga og Samiðnar, dags. 26.05.14.

Bæjarráð samþykkir aðild Garðabæjar að kjarasamningi Samiðnar og felur Sambandi ísl. sveitarfélaga umboð til að semja við félagið um kjarasamning fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 1405408

02

Bréf Reykjavíkurborgar varðandi Almenningssamgöngustefnu Reykjavíkur, dags. 23.05.14.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1403520

03

Tilboð í framkvæmdir við rými sjúkraþjálfunar á 1. hæð Ísafoldar, dags. 26.05.14.

Lögð eru fram eftirfarandi tilboð:$line$$line$Sérverk kr. 29.561.772$line$Spöng kr. 36.668.000$line$Þarfaþing kr. 29.158.845$line$$line$Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 25.241.543$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda og felur bæjarverfræðingi að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

Málsnúmer 1311356

04

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli vegna deiliskipulagsákvörðunar fyrir Silfurtún, Skátaheimilið Jötunheimar, dags. 23.05.14.

Lagður fram.

Málsnúmer 1311357

05

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í kærumáli vegna veitingu starfsleyfis fyrir Skátaheimilið Jötunheimar, Bæjarbraut 7, dags. 27.05.14.

Lagður fram.

Málsnúmer 1405362

06

Beiðni um greiðslu kennslukostnaðar vegna námsvistar í tónlistarskóla utan Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1303750

07

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Kinnargötu 6, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss að Kinnargötu 6.

Málsnúmer 1404310

08

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Löngumýri 28, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna sólskála við Löngumýri 28.

Málsnúmer 1405419

09

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Lindarflöt 13, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á víðbyggingu við Lindarflöt 13

Málsnúmer 1405081

10

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Litlatún 3, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á bakrými í verslunarhúsnæði við Litlatún 3.

Málsnúmer 1404449

11

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Olís v/Hafnarfjarðarveg, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna sjálfsafgreiðslupóstkassa við bensínstöð Olís.

Málsnúmer 1405172

12

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Löngumýri 53, dags. 28.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna innri breytinga íbúðarhúss við Löngumýri 53.

Málsnúmer 1405481

13

Úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir skýrslu um úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum. (Akureyri, Fljótsdalshérað, Hafnarfjörður, Stykkishólmur, Vesturbyggð og Þingeyjarsveit)$line$$line$Úttektin er unnin er á vegum Attentus mannauður og ráðgjöf fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið á árinu 2013.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslu um úttektina til skólanefndar og leikskólanefndar.

Málsnúmer 1405357

14

Tilboð í framkvæmdir við viðbyggingu Hofsstaðaskóla

Á fundi bæjarráðs 27. maí sl. voru lögð fram eftirfarandi tilboð.$line$$line$Þarfaþing kr. 418.949.275$line$Sveinbjörn Sig og Skrauta kr. 465.356.669$line$Spöng kr. 497.747.352 $line$Jáverk kr. 425.798.779$line$ÍAV kr. 437.881.975$line$$line$Við opnun tilboða lagði Þarfaþing fram athugasemd varðandi lið 5.5.3 í útboðslýsingu. Í athugasemdinni kom fram að ekki væri unnt að gefa verð í umræddan lið, m.a. vegna þess að ófullnægjandi lýsing væri á verkliðnum og óljóst bæði með magn og hvort hluti af því sem lýst væri teldist innifalið í öðrum liðum. Af hálfu Þarfaþings var farið fram á þessum verklið væri ?haldið utanvið í samanburði tilboða?. Þarfaþing fyllti ekki út þennan verklið einn bjóðanda.$line$$line$Lagt er fram minnisblað Andra Árnasonar, hrl., dags. 2. júní sl. þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að vegna athugasemdar Þarfaþings verði að líta svo að tilboð félagsins sé í ósamræmi við útboðsgögn og að gerður hafi verið fyrirvari við tilboðið sem ekki samræmist skilmálum útboðslýsingar. Þá kemur fram í minnisblaðinu að með vísan til gr. 2.7.1. í ÍST 30 skuli ekki taka tilboði sem sé í verulegum atriðum í ósamræmi við tilboðsgögn. $line$$line$Bæjarráð vísar til rökstuðnings í framlögðu minnisblaði og samþykkir að vegna frávika í tilboði Þarfaþings beri að meta tilboðið ógilt.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Já-verks og felur bæjarverkfræðingi að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.