21. (1882). fundur
21. (1882). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
04.06.2019
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1905087
01
Erindi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um starfsáætlun almannavarna, dags. 08.05.19.
Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.
Jón Viðar gerði grein fyrir starfsáætlun almannavarna og rýmingaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Einnig sátu fundinn undir þessum dagskrárlið, Lúðvík Hjalti Jónsson, Inga Þóra Þórisdóttir, Katrín Friðriksdóttir, Guðbjörg Brá Gísladóttir, Sunna Stefánsdóttir og Anna Guðrún Gylfadóttir, fulltrúar í neyðarstjórn Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer BN040084
02
Brekkuás 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eddu Björg Einarsdóttur, kt. 221154-4289, leyfi til að nýta rými sem áður var fyllt upp í núverandi einbýlishúsi að Brekkuási 1.
Málsnúmer 1812177
03
Víkurgata 8 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Parketlausnum ehf., kt. 591214-0200, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Víkurgötu 8.
Málsnúmer 1903060
04
Kirkjulundur 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita eignasjóði Garðabæjar leyfi fyrir viðbyggingu og innri breytingum við leikskólann Kirkjuból.
Málsnúmer 1903246
05
Smiðsbúð 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Smiðsbúð 6 ehf., kt. 640412-1350, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi atvinnuhúsnæði að Smiðsbúð 6.
Málsnúmer 1810085
06
Erindi íbúa við Unnargrund um samstarf við að reisa girðingu við lóðarmörk, dags. 01.10.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið hvað varðar að heimila eigendum fasteigna við Unnargrund 1, 3, 5, 7 og 9 að reisa vegg á lóðarmörkum við götu sem fari lítillega út fyrir lóðarmörk og myndi horn við gangstéttarbrún. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu skipulagsstjóra.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905347
07
Bréf körfuknattleiksdeildar Ungmennafélags Álftaness varðandi stuðning á leiktímabilinu 2019 - 2020, dags. 27.05.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar aðalstjórnar Ungmennafélagsins Álftaness og íþrótta- og tómstundaráðs. Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1905355
08
Bréf hóps í Félagi eldri borgara í Garðabæ um stuðning vegna þátttöku í Bocciakeppni á Landsmóti UMFÍ 2019, dags. 27.05.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1904143
09
Tilkynning Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis fyrir Sorpu bs. Álfsnesi, dags. 29.05.19.
Málsnúmer 1901022
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Blikastíg 18.
Umsagnarbeiðnin er tekin fyrir að nýju en umsækjandi hefur gert breytingar á umsókn þar sem fram kemur að um er að ræða minni gististað en ekki stærri gististað eins og kom fram í upphaflegri umsókn.
Þá liggur fyrir greinargerð umsækjanda þar sem fram kemur að einungis er um minni gististað að ræða með tveimur gistiherbergjum og er gestafjöldi takmarkaður.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1702124
11
Tölvupóstur Höfuðborgarstofu varðandi drög að samantekt og aðgerðaáætlun áfangastaðaráætlunar Höfuðborgarsvæðisins (DMP), dags. 21.05.19.
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir málinu og sagði frá vinnu að gerð draga að samantekt og aðgerðaráætlun áfangastaðaráætlunar höfuðborgarsvæðissins.
Drögin lögð fram án athugasemda.