26. (2174). fundur
26. (2174). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.07.2025
Kl. 08:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2507051
01
Kjarrmóar 22 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Stefánssyni, kt. 171154-3409, leyfi til að byggja bílskúr að Kjarrmóum 22.
Málsnúmer 2407179
02
Sigurhæð 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kjartani Gunnarssyni, kt. 050692-3029, leyfi fyrir viðbyggingu að Sigurhæð 7.
Málsnúmer 2502047
03
Vetrarbraut 21A - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Veitum ohf., kt. 501213-1870, leyfi fyrir byggingu stýrishúss hitaveitu að Vetrarbraut 21A.
Málsnúmer 2502027
04
Borgarás 10 - Ósk um ógildingu eða endurupptöku á byggingarleyfi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa að ekki séu forsendur fyrir ógildingu eða endurupptöku byggingarleyfis vegna Borgaráss 10.
Málsnúmer 2507103
05
Vátryggingaútboð Garðabæjar 2026-2028.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Vátryggingarútboð Garðabæjar 2026-2028":
1. Sjóvá hf., kr. 70.461.179.
2. TM hf., kr. 69.968.236.
3. VÍS hf., kr. 85.899.497.
4. Vörður hf., kr. 69.267.312.
Kostnaðaráætlun var 74.000.000.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Varðar hf., að fjárhæð kr. 69.267.312. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2507154
06
Styrkbeiðni Fjölbrautaskólans í Garðabæ í tilefni af 40 ára afmæli skólans, dags. 9. júlí 2025.
Styrkbeiðni verkefnis í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ vegna listaverks sem gert er í tilefni að 40 ára afmæli skólans.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir styrk að fjárhæð kr. 300.000.
Málsnúmer 2507111
07
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Umf. Stjörnunnar um veitingaleyfi í Ásgarði, Stjörnuhúsinu.
Lögð fram beiðni Umf. Stjörnunnar um leyfi til reksturs - veitingaleyfi í flokki II, við Stjörnuheimilið við Ásgarð, þar sem bætt er við útiveitingum á afmörkuðum svæðum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2507137
08
Bókun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi Samgöngusáttmálann - Sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., dags. 10. júlí 2025.
Sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf., um stöðu og framgang verkefna, sbr. h-lið 6.gr. Samgöngusáttmálans lögð fram.
Málsnúmer 2501538
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 7. júlí 2025.
Lagt fram