Sigurhæð 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2174). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kjartani Gunnarssyni, kt. 050692-3029, leyfi fyrir viðbyggingu að Sigurhæð 7.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
6. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn um breytingar á einbýlishúsin að Sigurhæð 7.
Umsóknin felur í sér viðbyggingu norðan við núverandi hús.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd um veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
16. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Umsóknin felur í sér viðbyggingu norðaustan, suðvestan og suðaustan megin við húsið. Húsið er í dag 182,4 m² og verður 248,2 m². Nýtingarhlutfall fer úr 0,23 í 0,33 en deiliskipulag heimilar nýtingarhlutfall 0,4. Samkvæmt uppdráttum þá fara viðbyggingar út fyrir byggingarreit á tveimur stöðum. Auk þess gerir tillaga ráð fyrir auka íbúð án þess að innangengt sé milli íbúða.
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt án undangengis breytingarferlis deiliskipulags.