Beint í efni

36. (2184). fundur

07.10.2025
Bæjarráð Garðabæjar

36. (2184). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.10.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2509368

01

Brunavarnaáætlun höfuðborgarsvæðisins - kynning.

Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri og Ingveldur Lára Þórðardóttir skrifstofustjóri og kynntu brunavarnaráætlun höfuðborgarsvæðisins. Áætlunin er sett á grundvelli laga um brunavarnir og markmið hennar er að tryggja að slökkviliðið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Brunavarnaáætlunin á að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, umhverfi og eignir með fullnægjandi eldvarnaeftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. skv. 13.gr. laga nr. 75/2005 um brunavarnir og fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að staðfesta áætlunina fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2506184

02

Niðurstöður könnunar Gallup á breytingum á starfsumhverfi leikskóla.

Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs og Hanna Halldóra Leifsdóttir, leikskólafulltrúi, kynntu niðurstöður skoðanakönnunar Gallup fyrir Garðabæ um leikskólamál í Garðabæ - stjórnendur/starfsfólk.

Málsnúmer 2510012

03

Starfsmannakannanir

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs, þróunar- og þjónustusviðs og fjármála og stjórnsýslusviðs um starfsmannakannanir í Garðabæ vegna fyrirspurnar Viðreisnar og Garðabæjarlistans um starfsmannakannanir síðustu sex ár.

Bókun Viðreisnar og Garðabæjarlistans: "Viðreisn og Garðabæjarlistinn óskuðu eftir að ræða starfsmannakannanir á þessum fundi og við þökkum sviðstjórum fyrir minnisblað um stöðu mála."

Málsnúmer 2510036

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna herra- og kvennakvölds í Miðgarði.

Lögð fram umsókn UMF Stjörnunnar vegna herra- og kvennakvölda Stjörnunnar, sem halda á 10. og 11. október 2025 i Miðgarði, Vetrarbraut 30. Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2509532

05

Styrkbeiðni Garðakórsins, kórs eldri borgara í Garðabæ, dags. 12.09.25.

Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2025.

Málsnúmer 2508116

06

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga varðandi fyrstu áætlun almennra jöfnunarframlaga og nýtt úthlutunarlíkan.

Lagðar fram tillögur ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir á árinu 2026.

Í áætluð framlög vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólabarna og fjölda notenda, er ráðgert framlag til Garðabæjar kr. 126.573.873.

Í áætluð um framlög til almennra grunnskólaframlaga, er ráðgert framlag til Garðabæjar kr. 421.350.569.

Í áætluð almenn jöfnunarframlög 2026, er ráðgert framlag til Garðabæjar kr. 201.460.017.

Málsnúmer 2510007

07

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2026, dags. 30.09.25.

Lagt fram bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárhagsáætlun 2026. Áætlað framlag Garðabæjar er kr. 251.736.000.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.

Málsnúmer 2510052

08

Bréf innviðaráðuneytisins um minningardag fórnarlamba umferðarslysa, dags. 30.09.25.

Lagt fram bréf innviðaráðuneytisins þar sem tilkynnt er um að árlegur minningardagur Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa verði haldinn sunnudaginn 16. nóvember 2025.

Málsnúmer 2509539

09

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040, 85. mál, dags. 26.09.25.

Lagt fram.