Brunavarnaáætlun höfuðborgarsvæðisins
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (966). fundur
Bæjarstjórn samþykkir brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. skv. 13.gr. laga nr. 75/2005 um brunavarnir og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að staðfesta áætlunina fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
36. (2184). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri og Ingveldur Lára Þórðardóttir skrifstofustjóri og kynntu brunavarnaráætlun höfuðborgarsvæðisins. Áætlunin er sett á grundvelli laga um brunavarnir og markmið hennar er að tryggja að slökkviliðið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Brunavarnaáætlunin á að stuðla að því að vernda líf og heilsu fólks, umhverfi og eignir með fullnægjandi eldvarnaeftirliti og viðbúnaði við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. skv. 13.gr. laga nr. 75/2005 um brunavarnir og fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að staðfesta áætlunina fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
34. (2182). fundur
Lögð fram ný brunavarnaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið sem samþykkt var af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þann 16. september 2025 og af stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 19. september 2025. Stefnt er að formlegri undirritun áætlunarinnar í október en gildistími hennar er ráðgerður frá nóvember 2025 til október 2030.