4. (787). fundur
4. (787). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
18.02.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. febrúar 2016 er lögð fram.[line]
Dagskrá
Málsnúmer 1602013F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/2 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Hver er staðan á þeirri vegferð sem lagt var í á sínum tíma af hálfu bæjaryfirvalda, að hvetja ÁTVR að opna Vínbúð í Garðabæ að nýju.
Fimm af sjö sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eru með Vínbúð, aðeins Garðabær með tæplega 15 þúsund íbúa og Kjósarhreppur með rúmlega 200 íbúa hafa ekki Vínbúð.“
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og framlagða fyrirspurn. Bæjarstjóri boðaði skriflegt svar.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1602023F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/2 ´16.
Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir veitingastað við Garðatorg og ræddi almennt um stöðu framkvæmda í nýjum miðbæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og tók undir sjónarmið um að taka málið til nánari umfjöllunar í bæjarráði og bæjarstjórn.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Baldur Ó. Svavarsson, ræddi sama mál. Þá ræddi Baldur, 8. tl., undirbúning framkvæmda við endurbætur sundlaugar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 8. tl., undirbúning framkvæmda við endurbætur sundlaugar.
Baldur Ó. Svavarsson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1601043F
03
Fundargerð afmælisnefndar Garðabæjar frá 27/1 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1602017F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 15/2 ´16.
Viktoría Jensdóttir, ræddi 3. tl., íbúakönnun, 4. tl., niðurskurð á sviði mennta- og frístundamála og 5. tl., þróunarsjóð leikskóla og sagði nánar frá umfjöllun um málin á fundi nefndarinnar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi leikskólamál og eftirlit með aðbúnaði á leikskólalóðum.
Viktoría Jensdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi um eftirlit með aðbúnaði á leikskólalóðum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1602012F
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/2 ´16.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 1. tl., kynnisferð í Sorpu og vakti athygli á gífurlegri matarsóun sem á sér stað á höfuðborgarsvæðinu.
Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., merkingar hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið og óskaði eftir upplýsingum um framkvæmd málsins.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., merkingar hjólastíga fyrir höfuðborgarsvæðið og svaraði fyrirspurn. Þá ræddi Jóna 1. tl., kynnisferð í Sorpu og 6. tl., kortavef. Jóna kynnti nánar hugmyndir um að láta útbúa app fyrir Garðabæ.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi mál á sviði umhverfisnefndar og fjallaði um matarsóun og hugmyndir að útbúa app fyrir Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1601034F
06
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 3/2 ´16.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður Rannsóknar og greiningar og sagði frá samstarfi við aðrar nefndir og skólana í bænum varðandi málið.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., styrkbeiðni Sjálandsskóla.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir, ræddi 3. tl., styrkbeiðni Sjálandsskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1602102
07
Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfj.- og Kópavogssvæðis frá 3/2 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1601267
08
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 29/1 og 12/2 ´16.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl. fg. 29/1, gjaldskrá Strætó, 7. tl., fg. 29/1, sameiginlegan fund með svæðisskipulagsnefnd, 2. tl., fg 12/2, áhættustefnu Strætó, 4. tl., fg. 12/2, framkvæmd virðisaukaskatts í rekstri á verkstæði Strætó og 5. tl., fg. 12/2, leigu húsnæðis að Hesthálsi 14.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1601366
09
Fundargerð stjórnar SSH frá 8/2 ´16.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1509083
10
Skjalastefna Garðabæjar
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði tillögu að skjalstefnu Garðabæjar og gerði grein fyrir mikilvægi hennar og styrkleika fyrir stjórnsýslu bæjarins.
Baldur Ó. Svavarsson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skjalastefnu Garðabæjar