Fundargerð bæjarráðs frá 9/2 ´16.
Málsnúmer 1602013F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (787). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 10. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Hver er staðan á þeirri vegferð sem lagt var í á sínum tíma af hálfu bæjaryfirvalda, að hvetja ÁTVR að opna Vínbúð í Garðabæ að nýju.
Fimm af sjö sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eru með Vínbúð, aðeins Garðabær með tæplega 15 þúsund íbúa og Kjósarhreppur með rúmlega 200 íbúa hafa ekki Vínbúð.“
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál og framlagða fyrirspurn. Bæjarstjóri boðaði skriflegt svar.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.