Beint í efni

14. (984). fundur

01.10.2026
Bæjarstjórn Garðabæjar

14. (984). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

01.10.2026

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Ýmir Örn Finnbogason - varabæjarfulltrúi
  • Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
  • Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. september 2026 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2609031F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 22/9 ´26.

Hlynur Bæringsson ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Minnihluti bæjarstjórnar, fulltrúar Framsóknarflokks, Garðabæjarlista og Samfylkingar, lýsir yfir vonbrigðum með árshlutauppgjör Garðabæjar, þar sem rekstrarniðurstaða er neikvæð um 617 milljónir í A-hluta og 277 milljónir í samstæðu. Garðabær er bæjarfélag í vexti og hefur á undanförnum árum fjárfest mikið. Þetta þýðir að rekstur bæjarins er sérstaklega viðkvæmur fyrir ytri aðstæðum líkt og háum vöxtum og verðbólgu. Þetta birtist í fjármagnskostnaði, sem er talsvert hærri á hvern íbúa en í nágrannasveitarfélögum og verulega yfir áætlun fyrir árið 2026. Handbært fé frá rekstri A-hluta var neikvætt um 113 milljónir króna, sem undirstrikar þörfina á að styrkja grunnreksturinn og draga úr þörf fyrir frekari lántökur.

Án sölu byggingarréttar væri staða rekstrarins enn veikari, og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu er augljóst að ekki verður hægt að treysta á þær tekjur í sama mæli og á undanförnum árum. Þessar aðstæður verða að endurspeglast í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Þar þarf að leggja raunhæfar forsendur til grundvallar sölutekjum, forgangsraða fjárfestingum, endurskoða stærstu þjónustusamninga og setja skýr og mælanleg markmið um hagræðingu. Renna verður styrkari stoðum undir grunnrekstur bæjarins þannig að reglulegar tekjur standi betur undir rekstri og skuldbindingum hans."

Björg Fenger ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 sýnir með skýrum hætti hversu mikil áhrif verðbólga og hátt vaxtastig hafa á fjármál sveitarfélaga.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta er neikvæð um 277 m.kr. á tímabilinu en undirliggjandi rekstur stendur þó áfram traustum fótum. Afkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði er jákvæð um 2,3 milljarða króna og veltufé frá rekstri nemur um einum milljarði króna. Það eru hins vegar fjármagnsliðir, sem nema um 1,5 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, sem vega þungt í niðurstöðunni. Þar ræður meiri verðbólga en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun miklu.

Garðabær býr yfir fjárhagslegum styrk. Skuldsetning Garðabæjar er mjög hófleg og langt innan viðmiðunarmarka. Þá nemur eigið fé sveitarfélagsins um 33 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall er um 43%. Sterk fjárhagsstaða verður ekki til á einu kjörtímabili heldur er hún afrakstur langtímasýnar, aðhalds og þess að meirihluti Sjálfstæðisflokksins hefur lagt áherslu á að tekjur og fjármunir bæjarins séu nýttir af ábyrgð. Á sama tíma hefur Garðabær vaxið hratt og sveitarfélagið ráðist í umfangsmikla uppbyggingu innviða til að mæta fjölgun íbúa og aukinni þjónustuþörf.

Áfram þarf þó að sýna festu og aðhald. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu því fylgjast náið með þróun rekstrar og fjármagnskostnaðar á síðari hluta ársins, með það að markmiði að verja sterka fjárhagsstöðu Garðabæjar og tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar."

Anna Ragnheiður Möller ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning. Hún lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna framkominni skýrslu HLH er varðar greiningu á rekstri og skipulagi þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Skýrslan staðfestir að í Garðabæ er veitt öflug og metnaðarfull þjónusta, en dregur jafnframt fram tækifæri til að bæta skipulag, auka skilvirkni og ná fram hagræðingu í rekstri.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að í rekstri sveitarfélagsins sé stöðugt verið að leita leiða til að nýta fjármuni með sem bestum hætti og þannig tryggja sjálfbæran rekstur. Því er mikilvægt að skoða nánar þau tækifæri sem skýrslan bendir á meðal annars við vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar, með það skýra markmið að ná fram betri nýtingu fjármuna án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning. Þá ræddi hann 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026.

Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2609045F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 29/9 ´26.

Björg Fenger ræddi 2.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2027 (2027-2030) og lagði til að bókun bæjarráðs verði færð í fundargerð bæjarstjórnar:

"Bæjarráð tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 um mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki og aðrir opinberir aðilar axli sameiginlega ábyrgð á því að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta og auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi.

Garðabær er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til þessa sameiginlega átaks. Við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir árið 2027 verði því miðað við að hækkun almennra gjaldskráa sveitarfélagsins verði að hámarki 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Með því heldur Garðabær aftur af gjaldskrárhækkunum þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins og leggur þannig sitt af mörkum til að verja kaupmátt heimilanna, draga úr verðbólguþrýstingi og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.

Með ákvörðun bæjarráðs er gengið út frá því að kjarasamningar haldi og að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í hinu sameiginlega átaki með því að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.

Bæjarráð leggur áherslu á að árangur í baráttunni við verðbólgu byggist á samstilltum aðgerðum ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins og að kostnaði vegna nýrra verkefna eða aukinna skyldna sveitarfélaga verði ekki velt yfir á sveitarfélög án fullnægjandi fjármögnunar."

Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2609035F

03

Fundargerð velferðarráðs frá 25/9 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2609028F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 21/9 ´26.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes og 3.tl. Norðurnes Álftaness, deiliskipulag. Lagði hún fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn lýsir yfir miklum efasemdum um breytingar á skipulagi Norðurness. Þessar efasemdir koma til út frá hagsmunum íbúa sem fyrir eru á svæðinu og vegna fyrirsjáanlegrar röskunar á fuglalífi og náttúru. Við teljum að bærinn verði að gefa sér lengri tíma til þess að ígrunda uppbyggingu á Norðurnesi Álftaness. Liður í því teljum við að geti verið að skoða og þarfagreina fleiri mögulega staði fyrir golfvöll fyrir Golfklúbb Álftaness, t.d. sunnan við Tjarnarbrekku og Kumlamýri, eða jafnvel á Bessastaðanesi með aðkomu frá Norðurnesi."

Björg Fenger ræddi 2.tl. skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes og 3.tl. Norðurnes Álftaness, deiliskipulag.

Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes og 3.tl. Norðurnes Álftaness, deiliskipulag.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes og 3.tl. Norðurnes Álftaness, deiliskipulag.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601375

05

Fundargerð stjórnar SSH frá 21/9 ´26.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. samspil og virkni velferðarþjónustu - sóknaráætlun 2025, 3.tl. fjárlög 2027 og 6.tl. farsældarverkefni tengd vinnu farsældarráðs - sóknaráætlun 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602330

06

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 11/9 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601508

07

Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27/7 og 18/9 ´26.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2602305

08

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæðanna frá 16/9 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.