Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 22/9 ´26.

Málsnúmer 2609031F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (984). fundur

Hlynur Bæringsson ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Minnihluti bæjarstjórnar, fulltrúar Framsóknarflokks, Garðabæjarlista og Samfylkingar, lýsir yfir vonbrigðum með árshlutauppgjör Garðabæjar, þar sem rekstrarniðurstaða er neikvæð um 617 milljónir í A-hluta og 277 milljónir í samstæðu. Garðabær er bæjarfélag í vexti og hefur á undanförnum árum fjárfest mikið. Þetta þýðir að rekstur bæjarins er sérstaklega viðkvæmur fyrir ytri aðstæðum líkt og háum vöxtum og verðbólgu. Þetta birtist í fjármagnskostnaði, sem er talsvert hærri á hvern íbúa en í nágrannasveitarfélögum og verulega yfir áætlun fyrir árið 2026. Handbært fé frá rekstri A-hluta var neikvætt um 113 milljónir króna, sem undirstrikar þörfina á að styrkja grunnreksturinn og draga úr þörf fyrir frekari lántökur.

Án sölu byggingarréttar væri staða rekstrarins enn veikari, og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu er augljóst að ekki verður hægt að treysta á þær tekjur í sama mæli og á undanförnum árum. Þessar aðstæður verða að endurspeglast í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Þar þarf að leggja raunhæfar forsendur til grundvallar sölutekjum, forgangsraða fjárfestingum, endurskoða stærstu þjónustusamninga og setja skýr og mælanleg markmið um hagræðingu. Renna verður styrkari stoðum undir grunnrekstur bæjarins þannig að reglulegar tekjur standi betur undir rekstri og skuldbindingum hans."

Björg Fenger ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 sýnir með skýrum hætti hversu mikil áhrif verðbólga og hátt vaxtastig hafa á fjármál sveitarfélaga.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta er neikvæð um 277 m.kr. á tímabilinu en undirliggjandi rekstur stendur þó áfram traustum fótum. Afkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði er jákvæð um 2,3 milljarða króna og veltufé frá rekstri nemur um einum milljarði króna. Það eru hins vegar fjármagnsliðir, sem nema um 1,5 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, sem vega þungt í niðurstöðunni. Þar ræður meiri verðbólga en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun miklu.

Garðabær býr yfir fjárhagslegum styrk. Skuldsetning Garðabæjar er mjög hófleg og langt innan viðmiðunarmarka. Þá nemur eigið fé sveitarfélagsins um 33 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall er um 43%. Sterk fjárhagsstaða verður ekki til á einu kjörtímabili heldur er hún afrakstur langtímasýnar, aðhalds og þess að meirihluti Sjálfstæðisflokksins hefur lagt áherslu á að tekjur og fjármunir bæjarins séu nýttir af ábyrgð. Á sama tíma hefur Garðabær vaxið hratt og sveitarfélagið ráðist í umfangsmikla uppbyggingu innviða til að mæta fjölgun íbúa og aukinni þjónustuþörf.

Áfram þarf þó að sýna festu og aðhald. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu því fylgjast náið með þróun rekstrar og fjármagnskostnaðar á síðari hluta ársins, með það að markmiði að verja sterka fjárhagsstöðu Garðabæjar og tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar."

Anna Ragnheiður Möller ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning. Hún lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna framkominni skýrslu HLH er varðar greiningu á rekstri og skipulagi þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Skýrslan staðfestir að í Garðabæ er veitt öflug og metnaðarfull þjónusta, en dregur jafnframt fram tækifæri til að bæta skipulag, auka skilvirkni og ná fram hagræðingu í rekstri.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að í rekstri sveitarfélagsins sé stöðugt verið að leita leiða til að nýta fjármuni með sem bestum hætti og þannig tryggja sjálfbæran rekstur. Því er mikilvægt að skoða nánar þau tækifæri sem skýrslan bendir á meðal annars við vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar, með það skýra markmið að ná fram betri nýtingu fjármuna án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning.

Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ. Greining á rekstri og skipulagi þjónustu. Kynning. Þá ræddi hann 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30. júní 2026.

Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.