11. fundur
11. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.12.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Alma V Sverrisdóttir - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Bergþóra Sigmundsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Jóna Gísladóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Fundur með barnaverndarnefnd
Barnaverndarstofa hefur ákveðið að funda með öllum barnaverndarnefndum landsins í því skyni að leggja mat á starfsskilyrði, verkefni og úrræði nefndanna, en það er í samræmi við framkvæmdaáætlun ríkisins í barnavernd fram til næstu sveitarstjórnarkosninga árið 2014. Barnaverndarstofa kom á fund fjölskylduráðs Garðabæjar 12.12.2013. Á fundinum var farið almennt yfir stöðu mála í Garðabæ og þær aðstæður sem starfsfólk barnaverndarnefndar glímir við í daglegum störfum sínum. Fundurinn var góður og eru Barnaverndarstofu færðar þakkir fyrir.
02
Sérstakar húsaleigubætur
Tekin er fyrir beiðni um undanþágu vegna sérstakra húsaleigubóta. Fjölskylduráð fjallar um og samþykkir erindið. Sjá nánar í trúnaðarmálabók.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir málskot í tengslum við umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um erindið. Erindi er samþykkt. Sjá nánar í trúnaðarmálabók.
04
Úttekt vegna umsóknar um að gerast stuðningsfjölskylda
Tekin er fyrir beiðni um úttekt vegna umsóknar fjölskyldu í Garðabæ um að gerast stuðningsfjölskylda. Mælt er með því að fjölskyldan fái leyfið, sjá nánar í trúnaðarmálabók.
05
Bakvaktir barnaverndarnefndar
Félagsmálastjóri og félagsráðgjafi kynna fyrirhugað tilraunaverkefni um samvinnu Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Kópavogs um sameiginlegar bakvaktir barnaverndar. Gert er ráð fyrir að sameiginlegar bakvaktir hefjist í janúar 2014. Fjölskylduráð samþykkir að veita starfsmönnum barnaverndarnefnda Kópavogs og Hafnarfjarðar umboð til þess að sinna tilteknum lögbundnum skyldum nefndarinnar í tengslum við sameiginlegar bakvaktir í barnavernd. Jafnframt felur ráðið formanni að undirrita umboð þess efnis fyrir hönd fjölskylduráðs. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með þennan áfanga.