13. fundur
13. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.12.2019
Kl. 16:00 - 20:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðrún Hrefna Sverrisdóttir - félagsráðgjafi
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Barnaverndarmál - fóstur
Tekið er fyrir mál nr. 1306446, fósturmál. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Tekið er fyrir mál nr.1911388 umsókn um fjárhagsaðstoð, beiðni um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar.
Tekið fyrir mál nr. 1911375 stefna Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar. Stofnunin tók til starfa í maí 2018 og hefur stefnan hefur verið í mótun frá hausti 2018. Í stefnunni koma fram gildi stofnunarinnar, hlutverk, sýn og verkefni. Lagt fram og rætt.
04
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Tekið er fyrir mál nr. 1911304 bréf starfshóps um stafræna framþróun þjónustu hjá Garðabæ þar sem kallað er eftir hugmyndum, ábendingum, sjónarmiðum og þörfum ólíkra sviða. Fjölskylduráð Garðabæjar fagnar skipun starfshóps um stafræna þróun innan Garðabæjar. Málið verður tekið upp aftur á næsta fundi fjölskylduráðs.