Beint í efni

26. fundur

04.01.2017
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

26. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

04.01.2017

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
  • Tómas Björnsson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1611177

01

Íþróttahátíð Garðabæjar 2016

Kjör íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.

Kosning um lið ársins.

Viðurkenningar fyrir störf að íþrótta og æskulýðsmálum

ÍTG valdi íþróttamann Garðabæjar í karla og kvenna flokki.Kjörinu verður lýst sunnudaginn 8. janúar kl. 13:00 á Íþróttahátíð Garðabæjar í Ásgarði. Opin vefkosning á gardabaer.is fór fram dagana 28. febrúar til 3. janúar og gilti hún sem sem sjötta atkvæði.

Íþróttamenn ársins voru Harpa Þorsteinsdóttir knattspyrnukona úr Stjörnunni og Dagfinnur Ari Normann kraftlyftingamaður úr Stjörnunni.

Lið ársins var valið lið Stjörnunnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu.

Viðurkenningu fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum hljóta Gunnar Örn Erlingsson fyrir störf að handbolta hjá Stjörnunni og Hafdís Bára Kristmundsdóttir skátaforingi fyrir störf innan skátahreyfingarinnar og Vífils.

Málsnúmer 1701044

02

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur vegna landsliðsverkefna kr. 20.000,- Arna Sólrún Heimisdóttir kt. 1401022020 vegna U16 Landslið í Blaki á EM U17 í Danmörku 19-21. des 2016

ÍTG samþykkti á fundi sínum 4. janúar 2017 ferðastyrk vegna landsliðsverkefna kr. 20.000,- til Örnu Sólrúnar Heimisdóttur kt. 140102-2020 vegna ferðar U16 landsliðs í blaki á EM U17 í Danmörku 19-21. des 2016.

Málsnúmer 1701058

03

Afreksstyrkir 2017

Auglýsing um afreksstyrki 2017

Frestur til að skila umsóknum er til 1. febrúar. Afgreiðsla umsókna fer fram á fundi ÍTG 8. febrúar.