Beint í efni

Íþróttahátíð Garðabæjar 2016

Málsnúmer 1611177

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

26. fundur

Kjör íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.
Kosning um lið ársins.
Viðurkenningar fyrir störf að íþrótta og æskulýðsmálum

ÍTG valdi íþróttamann Garðabæjar í karla og kvenna flokki.Kjörinu verður lýst sunnudaginn 8. janúar kl. 13:00 á Íþróttahátíð Garðabæjar í Ásgarði. Opin vefkosning á gardabaer.is fór fram dagana 28. febrúar til 3. janúar og gilti hún sem sem sjötta atkvæði.
Íþróttamenn ársins voru Harpa Þorsteinsdóttir knattspyrnukona úr Stjörnunni og Dagfinnur Ari Normann kraftlyftingamaður úr Stjörnunni.
Lið ársins var valið lið Stjörnunnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu.
Viðurkenningu fyrir störf að íþrótta- og æskulýðsmálum hljóta Gunnar Örn Erlingsson fyrir störf að handbolta hjá Stjörnunni og Hafdís Bára Kristmundsdóttir skátaforingi fyrir störf innan skátahreyfingarinnar og Vífils.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

25. fundur

Tilnefningar til íþróttamanna Garðabæjar 2016.
ÍTG velur 5 karla og 5 konur sem verða í kjöri.

Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin sunnudaginn 8. janúar 2017 kl. 13:00 fimleikasal Ásgarðs. Auk verðlaunaafhendinga fyrir framúrskarandi árangur innanlands, á EM og NM og landsliðsþátttöku, verða skemmtiatriði frá Tónlistarskóla Garðabæjar og yngri iðkendum Stjörnunnar í fimleikum. Veitt verður viðurkenning fyrir framlag til íþrótta- og tómstundamála í sveitarfélaginu. Kaffiveitingar verða í boði. Athöfnin verður í beinni útsendingu á vef.
ÍTG samþykkir að tilnefna fimm karla og fimm konur til íþróttamanns Garðabæjar. Rafræn kosning fer fram á vefnum www/gardabaer.is sem gildir á móti atkvæðum nefndarmanna ÍTG. Kynning á íþróttafólkinu fer fram á vefnum og í Garðapóstinum.
Í kjöri til íþróttakarls Garðabæjar verða:
Birgir Leifur Hafþórsson GKG Golf
Dagfinnur Ari Normann Stjarnan kraftlyftingar
Hilmar Árni Halldórsson Stjarnan knattspyrna
Pétur Gunnarsson Hvönn samkvæmisdansar
Viktor Elí Tryggvason Stjarnan hópfimleikar
Í kjöri til íþróttakonu Garðabæjar verða:
Freydís Halla Einarsdóttir Ármann svigskíði
Harpa Þorsteinsdóttir Stjarnan knattspyrna
Kolbrún Þöll þorradóttir Stjarnan fimleikar
Sólveig Lára Kjærnested Stjarnan handknattleikur
Ynja Mist Aradóttir Stjarnan kraftlyftingar

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

24. fundur

Tilhögun verðlaunaveitinga til íþróttamanna garðabæjar og þeirra sem skarað hafa framúr á árinu 2016.

ÍTG samþykkir að breyta nafni hátíðarinnar úr "Íþróttamaður Garðabæjar" í "Íþróttahátíð Garðabæjar".
Verðlaunaveitingar verða þær sömu og áður. Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 8. janúar 2017 kl. 13:00.