12. fundur
12. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
22.01.2020
Kl. 08:30 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - verkefnastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Sigurborg K Kristjánsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- María Jónsdóttir - fulltrúi foreldra
- Elín Ósk Þorsteinsdóttir - fulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
01
Tillaga um skipun starfshóps til að vinna að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu hjá Garðabæ.
Lagt fram til upplýsinga, framkvæmd verkefnisins verður fylgt eftir með kynningu á stöðu þess á næsta fundi nefndarinnar,
02
ytra mat á Hæðarbóli
Ytra mat Hæðarbóls lagt fram til kynningar. Leikskólanefnd fagnar jákvæðum niðurstöðum varðandi innra starf leikskólans. Leikskólanefnd verður upplýst um framvindu umbóta sem kallað er eftir í lokaskýrslu.
03
Áhrif laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á launröðun í leik- og grunnskólum frá og með 1. janúar 2020
Lög nr.95/2019 lögð fram til upplýsinga. nefndin álýtur að þar sem lögin hafa nýlega tekið gildi sé ekki ljóst hver áhrif þeirra verða. Fylgjast þarf með hver áhrifin verða á leikskólastigið.
04
Ályktun FL og FSL frá jólafundi 2019. Starfsaðstæður í leikskólum
Leikskólanefnd felur Fræðslu- og menningarsviði að fylgjast með þróun starfsumhverfis leikskóla bæði varðandi þjónustu við íbúa og faglegt innra starf.
05
Ný menntastefna
Nefndarformaður kynnti undirbúning að vinnu við nýja menntastefnu sem mun hefjast á fyrri hluta þessa árs.
06
Áhersluþættir þróunarsjóðs leikskóla
Leikskólanefnd felur formanni og leikskólafulltrúa að vinna nánar að áhersluþáttum fyrir næsta úthlutunarár í samráði við skólanefnd grunnskóla.
07
Biðlistar í leikskólum
Leikskólanefnd var upplýst um stöðu á biðlistum og þeim ferlum sem úthtutun í leikskóla byggir á.
08
Fyrirspurn um málefni leikskóla
Lagðar voru fram kostnaðargreiningar á rekstri leikskóla Garðabæjar og Höfuðborgarsvæðisins s.k.v. upplýsingum úr gagnagrunni sambands íslenskra sveitarfélaga. Einnig voru lagðar fram upplýsingar um rekstur leikskóla í Garðabæ sbr. úttektarskýrslu Haraldar Líndals Haraldssonar sem lögð var fram í bæjarstjórn haustið 2019. Nefndarmönnum var einnig leiðbeint um aðgang að tölulegum upplýsingum um leikskóla á vef sambandsins. Leikskólanefnd fól leikskólafulltrúa að afla upplýsinga um fjölda barna sem er með dvöl í leikskóla milli 16:30 til 17:00.