Beint í efni

3. fundur

09.09.2026
Leikskólanefnd Garðabæjar

3. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

09.09.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Páll Árnason - aðalmaður
  • Eydís Sigurðardóttir - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Elín Ósk Þorsteinsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhanna Gunnarsdóttir - fulltrúi kennara
  • Sara Sól Hannesdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2608153

01

Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Sunnuhvoll

Beiðni leikskólans Sunnuhvols um tilfærslu á skipulagsdegi var tekin fyrir og hún samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að leikskólastjórnendur meti framvegis, í samráði við leikskólafulltrúa, hvaða skipulagsdagar verði færðir til þegar óskir um slíkar breytingar koma fram. Við það mat verði sérstaklega horft til þess að samræma tilfærslur eins og kostur er þegar fleiri en einn leikskóli óskar eftir breytingum á sama tímabili, með það að markmiði að draga úr áhrifum á forráðafólk og börn.

Málsnúmer 2608192

02

Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Krakkakot

Beiðni leikskólans Krakkakots um tilfærslu á skipulagsdegi var tekin fyrir og hún samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að leikskólastjórnendur meti framvegis, í samráði við leikskólafulltrúa, hvaða skipulagsdagar verði færðir til þegar óskir um slíkar breytingar koma fram. Við það mat verði sérstaklega horft til þess að samræma tilfærslur eins og kostur er þegar fleiri en einn leikskóli óskar eftir breytingum á sama tímabili, með það að markmiði að draga úr áhrifum á forráðafólk og börn.

Málsnúmer 2609062

03

Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi 5 ára deild Sjálandsskóla

Beiðni 5 ára deildar Sjálandsskóla um tilfærslu á skipulagsdegi var tekin fyrir og hún samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að leikskólastjórnendur meti framvegis, í samráði við leikskólafulltrúa, hvaða skipulagsdagar verði færðir til þegar óskir um slíkar breytingar koma fram. Við það mat verði sérstaklega horft til þess að samræma tilfærslur eins og kostur er þegar fleiri en einn leikskóli óskar eftir breytingum á sama tímabili, með það að markmiði að draga úr áhrifum á forráðafólk og börn.

Málsnúmer 2609146

04

Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Akrar

Beiðni leikskólans Akra um tilfærslu á skipulagsdegi var tekin fyrir og hún samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að leikskólastjórnendur meti framvegis, í samráði við leikskólafulltrúa, hvaða skipulagsdagar verði færðir til þegar óskir um slíkar breytingar koma fram. Við það mat verði sérstaklega horft til þess að samræma tilfærslur eins og kostur er þegar fleiri en einn leikskóli óskar eftir breytingum á sama tímabili, með það að markmiði að draga úr áhrifum á forráðafólk og börn.

Málsnúmer 2607098

05

Bókun frá 630. fundi stjórnar SSH - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2027 var lögð fram til kynningar. Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs kynnti og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.