Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi Sunnuhvoll
Málsnúmer 2608153
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Beiðni leikskólans Sunnuhvols um tilfærslu á skipulagsdegi var tekin fyrir og hún samþykkt. Leikskólanefnd leggur til að leikskólastjórnendur meti framvegis, í samráði við leikskólafulltrúa, hvaða skipulagsdagar verði færðir til þegar óskir um slíkar breytingar koma fram. Við það mat verði sérstaklega horft til þess að samræma tilfærslur eins og kostur er þegar fleiri en einn leikskóli óskar eftir breytingum á sama tímabili, með það að markmiði að draga úr áhrifum á forráðafólk og börn.