Beint í efni

24. fundur

28.04.2021
Leikskólanefnd Garðabæjar

24. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

28.04.2021

Kl. 08:30 - 10:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður

Starfsmenn

  • Halldóra Pétursdóttir - leikskólafulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Kristín Valgarðsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Benedikt D. Valdez Stefánsson - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Halldóra Pétursdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2001218

01

Endurgerð menntastefnu

Farið var yfir stöðu á vinnslu við endurgerð menntastefnu og þeim verkefnum sem fyrirliggja.

Málsnúmer 2005227

02

Innritun í leikskóla 2020

Rúmlega 30% fjölgun er á börnum á leikskólastigi í sveitarfélaginu. Innritun á leikskóla fer fram í fjórum áföngum og er það gert í samvinnu við leikskólastjóra bæjarins. Þegar hefur börnum í fyrstu tveimur áföngunum verið boðin dvöl en það eru öll börn fædd fyrir 30. júní 2020. Þriðja úthlutun er áætluð í lok júní og þá verður börnum fæddum í júlí, ágúst og september boðin dvöl. Ákvörðun um úthlutun á fjórða áfanga sem eru börn fædd frá 1. október til 31. desember hefur ekki verið tímasett. Alls hafa verið innrituð 145 börn fædd 2020. Í þriðja og fjórða áfanga eru nú um 150 börn og stefnt er að því að innrita þau öll fyrir árslok. Hafin er undirbúningsvinna við að fjölga leikskólaplássum við Sunnuhvol með lausum kennslustofum til að mæta aukinni fjölgun barna. Lögð er áhersla á að öll þau leikskólarými sem Garðabær á samkvæmt samningi við Hjallastefnuna séu fullnýtt.

Málsnúmer 2104339

03

Stytting vinnuvikunnar í leikskólum

Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir í formi fræðslu til að rýna frekar innra starf leikskólanna m.t.t. styttingu vinnuvikunnar og mun leikskólanefnd fylgjast með þeirri þróun..

Málsnúmer 2104340

04

Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum

Upplýst var um áframhaldandi samning við Skólamat í Urriðaholtsskóla, engar athugasemdir voru gerðar við það. Leikskólar hafa í auknum mæli nýtt sér þjónustu frá Skólamat þegar forföll hafa orðið hjá starfsfólki í eldhúsi.