Innritun í leikskóla 2020
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
24. fundur
Rúmlega 30% fjölgun er á börnum á leikskólastigi í sveitarfélaginu. Innritun á leikskóla fer fram í fjórum áföngum og er það gert í samvinnu við leikskólastjóra bæjarins. Þegar hefur börnum í fyrstu tveimur áföngunum verið boðin dvöl en það eru öll börn fædd fyrir 30. júní 2020. Þriðja úthlutun er áætluð í lok júní og þá verður börnum fæddum í júlí, ágúst og september boðin dvöl. Ákvörðun um úthlutun á fjórða áfanga sem eru börn fædd frá 1. október til 31. desember hefur ekki verið tímasett. Alls hafa verið innrituð 145 börn fædd 2020. Í þriðja og fjórða áfanga eru nú um 150 börn og stefnt er að því að innrita þau öll fyrir árslok. Hafin er undirbúningsvinna við að fjölga leikskólaplássum við Sunnuhvol með lausum kennslustofum til að mæta aukinni fjölgun barna. Lögð er áhersla á að öll þau leikskólarými sem Garðabær á samkvæmt samningi við Hjallastefnuna séu fullnýtt.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
22. fundur
Leikskólanefnd var upplýst um innritun í leikskóla. Fjölgun er á börnum í sveitarfélaginu og þau börn sem fædd eru 2020 talsvert fjölmennari en árgangur 2015 sem fer í grunnskóla í haust.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lagðar fram upplýsingar um innritun í leikskólana. Innritun á 2019 árgangi er nánast lokið.