36. fundur
36. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
17.12.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Þorgerður Anna Arnardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Nicoleta Mihai - fulltrúi starfsmanna
- Ingi Örn Jónsson - fulltrúi foreldra
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2512218
01
Verklagsreglur starfsmanna í leikskólum Garðabæjar.
Í ljósi umræðna í samfélaginu um öryggi barna í leikskólum fór leikskólafulltrúi yfir það samráð sem átt hefur sér stað með stjórnendum leikskóla varðandi fyrirliggjandi verklagsreglur um ofbeldi og/eða óviðeigandi hegðun gagnvart börnum. Í þeirri vinnu rýndu stjórnendur einnig skipulag rýma og dagsskipulag leikskóla með tilliti til öryggis barna. Sú vinna var kynnt fyrir leikskólanefnd sem lýsir ánægju sinni yfir því að þessi vinna hafi farið fram í leikskólum Garðabæjar.
Málsnúmer 2506455
02
Leikskólar Starfsáætlun 2024-2025 Umbótaáætlun 2025-2026
Starfs- og umbótaáætlun bæjarrekinna leikskóla kynnt.
Málsnúmer 2512252
03
Úthlutunar reglur vegna stoðþjónustu
Margret Björk Björgvinsdóttir sérkennslufulltrúi kynnti drög að nýjum reglum um stoðþjónustu í leikskólum Garðabæjar.